11.01.1917
Neðri deild: 22. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 146 í B-deild Alþingistíðinda. (222)
40. mál, kaup á eimskipum til vöruflutninga
Framsm. (Magnús Pjetursson):
Þetta frv. lítur hjákátlega út, eins og það kemur frá 2. umr. Fyrirsögn þess og greinum ber ekki saman. Það hefir ekki verið gjörð brtt. nema við 1. gr., og er það ósamrímanlegt. Nú eru komnar brtt. frá nefndinni, sem eiga að laga þetta. En í flaustrinu, sem hjer er á öllum störfum, hefir ekki tekist betur til en svo, að jeg og nefndin erum alls ekki ánægð með þessar brtt. Brtt. eru allar bein afleiðing af þeirri brtt., sem samþ. var við 2. umr. 1. brtt. er gjörð út af athugasemd háttv. 2. þm. Árn. (E. A). Honum þótti rjett, að hafa ekki hámark um stærð skipsins, og var það tekið til greina af nefndinni. Hins vegar þótti henni rjett að hafa lágmarkið 1500 smálestir. En út af þessu flaustri hefir fallið út mikilvægt atriði. Jeg ætlaðist til, að fyrir »skip« í 2. gr. kæmi »eimskip«, en það hefir fallið burt, sakir þess, að jeg varð að kasta brtt. inn á skrifstofuna meðan jeg var að hafa framsögu í öðru máli. Jeg sje ekki vel, að deildin geti kastað frá sjer frv. þann veg, eins og handarskömm. Finst mjer rjett að taka það út af dagskrá. Það getur líka verið fleira við það að athuga, ef nefndin hefði tíma. (Forseti: Jeg vil benda háttv. þm. ,(M. P.) á, að nota skriflega brtt.). (Bjarni Jónsson: Hjer hafa áður verið notaðar skriflegar brtt., og það er ætíð látið nægja á stúdentafundum).