11.01.1917
Neðri deild: 22. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 147 í B-deild Alþingistíðinda. (223)

40. mál, kaup á eimskipum til vöruflutninga

Einar Arnórsson:

Jeg vil taka í þann streng með háttv. framsm. (M. P.), að jeg er ekki ánægður með brtt. á þgskj. 147. Jeg sje, að fyrirhuguð brtt. mín er rjettari en 5. brtt. háttv. nefndar, að fyrir »kaup á skipum« komi kaup á eimskipum. Býst jeg við, að hún verði tekin aftur, er mín kemur fram. Enn fremur mun jeg þá leggja til, að fyrir »kaupa skip« komi kaupa eimskip. Þetta er að eins formsbreyting, en svo er efnisbreyting við 1. gr., sem jeg mintist á við 1. umr. Jeg er ekki ánægður með brtt. háttv. nefndar. Hún bindur stærðina við minst 1500 smálestir. Jeg hefi ekki að eins að athuga við hámarkið, 2000 smálestir, heldur og lágmarkið, 1500 smálestir. Jeg segi þetta ekki af því, að jeg hafl nokkuð á móti því, að skipin sje svona stór; síður en svo. En mjer finst ekki rjett, að binda heimild stjórnarinnar við ákveðið lestatal. Kem jeg því með þá brtt., að þetta ákvæði falli burtu. Ef hún yrði samþykt, skal jeg geta þess, að jeg ætlast til, að stjórnin hagi sjer eftir kringumstæðum. Jeg geng út frá því, að stjórnin noti ekki heimildina til að kaupa einhver smáskip. Jeg býst við, að stjórninni gætu boðist þægileg skip 10—12—14 hundruð smálesta, og vil jeg ekki með lögum útiloka hana frá að nota slík tilboð. Mjer finst því ekki rjett, að binda stærðina (lágmarksstærð skipanna) eins og nefndin hefir gjört. En jeg tel rjett að taka það fram í framsögunni, að þess sje vænst, að stjórnin noti heimildina vel og kaupi hentug skip. Brtt. mínar verða skriflegar, og vona jeg, að menn Virði frágang þeirra á betri veg, er tíminn er svo naumur.