05.01.1917
Neðri deild: 15. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 169 í B-deild Alþingistíðinda. (254)
29. mál, ullarmat
Sveinn Ólafsson:
Afstaða mín til þessa frv. er fyrirfram ákveðin, og er hún bygð á kynnum þeim, er jeg hefi haft af ullarmatinu næstliðið ár. Satt að segja, eru þau kynni ekki góð. Yfirleitt hafa ullarmatslögin haft þau áhrif, að verð ullarinnar er snögt um lakara en ella mundi. Það skilja allir, að þörf er á því, að ullin sje flokkuð og metin, og sjálfsagt er að halda því áfram, þegar alt er komið í lag aftur á heimsmarkaðinum.
Annars stóð jeg einkum upp til þess, að gjöra fyrirspurn til hins háttv. flutningsm. (B. J.). Hefir hann hugsað sjer, að kipt sje burtu launum þeim, er ullarmatsmenn eiga að hafa, eða að þau sje látin standa?