05.01.1917
Neðri deild: 15. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 179 í B-deild Alþingistíðinda. (261)
29. mál, ullarmat
Þórarinn Jónsson:
Út af fyrirspurn hv. 2 þm. Árn. (E. A.) skal jeg geta þess, að mjer er ekki unt að svara henni að svo komnu, jeg þekki ekki samningana, hvort þeir gilda áfram eða ekki; jeg hefi ekki sett mig inn í þá. En alt um það get jeg ekki hugsað mjer, að vjer þurfum að óttast þetta atriði, og ekki hefi jeg heldur fundið það í þessum samningaplöggum, að Englendingar hafi sett það að skilyrði, að ullin væri metin.