05.01.1917
Neðri deild: 15. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 179 í B-deild Alþingistíðinda. (262)

29. mál, ullarmat

Flutnm. (Bjarni Jónsson):

Mjer þykir það leitt að heyra nokkurn hv. þm. lýsa því yfir, að hann þori ekki að breyta lögum, eða fresta þeim, samkvæmt sannfæringu sinni, af því að þeir óttist, að einhverjum útlendum þjóðum komi það illa. En í þessu máli er ótti hv. þm. með öllu ástæðulaus, af því að Bretar hafa þegar gengið inn á breytingu á þessum lögum, sem er okkur í hag, en þeim í óhag, um flokkunina á ullinni og verðmun flokkanna, og er þetta hv. þm. S.-Þ. (P. J.), vel kunnugt. Það er því fyrir fram auglýst, að þeir muni ekki þykkjast við okkur, þótt við saþyktum þetta frv.

Þar sem háttv. þm. S.-Þ. (P. J.) talaði um það, sem annan ótta sinn, að hann teldi það óvíst, að hann mundi lifa það, að ullarmatslögin yrðu aftur leidd í lög, og að það væri því leiðara fyrir hann, sem hefði öðrum fremur barist fyrir því, að þau yrðu samþykt, þá er því til þess að svara, að fyrst og fremst veit jeg ekki til þess, að hann hafi meira en aðrir góðir menn, jeg og aðrir, barist fyrir því, að ullarmatslögin yrðu samþykt, því að jeg veit ekki annað en að flest allir þingmenn 1915 væru einhuga um að þessi lög væru þjóðþrifamál. En hvað hinu viðvíkur, að hann lifi ekki svo lengi, að hann sjái þau komast í framkvæmd, þá sje jeg ekki enn þau ellimörk á honum, að jeg geti búist við því. Það er sem sje ekki fyrirætlun vor flutningsmanna, að koma þessu máli fyrir kattarnef fyrir fult og alt. En hitt viljum vjer, að Íslendingar sje ekki að gjöra sjer óþarfa tilkostnað, sem engum kemur að gagni.

Hv. 2. þm. Árn. (E. A.) setti upp það hugsaða dæmi, að sá aðili, sem keypti ullina, krefðist þess, að hún yrði metin. Og svo spurði hann, hvað vjer ættum þá að gjöra. Þar til er því að svara, að auðvitað yrði þá farið að nákvæmlega eins, og farið hefði verið að, hefði þessa verið krafist meðan engin ullarmatslög voru komin á. Stjórnin mundi þá gefa út bráðabirgðalög um ullarmat, eða ef til vill finna einhvern annan betri veg. Jeg sje enga ástæðu til að bera það vantraust til stjórnarinnar að óreyndu, að hún hefði ekki einhver ráð með það. Annars finst mjer það vera algjört samningsatriði við kaupanda, hvort flokka skuli ullina eða ekki, og er þá auðvitað miklu betra að hafa engin lög um það, því að þá fá stjórnmálamenn vorir miklu betra tækifæri til þess, að láta samningasnild sína koma í ljós, og mjer finst jafnvel mega, með þetta fyrir augum, búast við því, að einmitt þeir muni útvega okkur miklu betri kjör við söluna á ullinni, ef engin lög eru til, sem hindra framkvæmd þeirra í því efni.

Hv. sami þm. (E. A.) bar mjer það á brýn, í sambandi við þetta mál, að mig skorti sjálfstæði. Jeg get ekki skilið það, hvernig hann hefir farið að komast að þeirri niðurstöðu. Hefði það verið einhver annar hv. þm., sem heíði látið sjer slíka heimsku um munn fara, þá hefði jeg getað skilið það.

Það sem sami hv. þm. (E. A.) sagði um Spánverja og fiskinn, heyrir líka undir það sama. Það var eintómur misskilningur, og líkara að hv. 2. þm. Rang. (E. J.) hefði sagt það. Annars finst mjer hv. 2. þm. Árn. (E. A.) vera farið stundum líkt og Hómer gamla, að hann dottar í hugsun sinni. Hann hefir dottað, þegar hann var að hugsa þessa fjarstæðu.

En það er eitt höfuðatriði í þessu máli, sem miklu skiftir, og mjer er ekki kunnugt um, og það er það, hvort samningarnir, sem gjörðir voru við Breta nú í sumar, sem leið, eiga að lögum að gilda til eilífðar, eða hvort þeir hafa einungis átt að gilda til þessarra nú nýafstöðnu áramóta. Úr þessu ætti háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) manna best að geta skorið. Mjer hafði ekki komið til hugar annað en að þeir fjellu úr gildi 1. janúar 1917, en nú heyri jeg utan að mjer, að þeir sje svo vaxnir, að þeir gildi um alveg óákveðinn tíma.