12.01.1917
Neðri deild: 23. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 209 í B-deild Alþingistíðinda. (289)
45. mál, verðlaun fyrir útflutta síld
Forstisráðh. (Jón Magnusson):
Jeg vil leyfa mjer að geta þess, að jeg greiddi atkvæði á móti frv. í gær, ekki af því jeg álíti, að þessi tvö frv., sem hjer hafa verið sett í samband hvort við annað, ættu ekki að fylgjast að í einhverri mynd, heldur af því, að jeg áleit heppilegra, að ráðuneytið fengi að athuga þetta mál undir næsta þing. Álít jeg mjög varhugavert að afgreiða slík mál sem þessi í flýti, enda engu spilt þótt þau væru geymd til byrjunar næsta þings.
Jeg er samdóma háttv. 2. þm. Árn. (E. A ) í því, að ákvæðið „íslenskur borgari“ sje ekki heppilegt. Eru með því undanskilin öll hlutafjelög í landinu. Best hefði verið að segja eitthvað á þá leið, að verðlaun skyldi veita fyrir það, er aflað væri á íslensk skip og flutt út.
Brtt. sú, er kom frá háttv. þm. Dala. (B. J.) er gjörsamlega óframbærileg, þar sem sama tillagan var feld hjer í gær, og vil jeg bæta því við, að ef slík afbrigði væru leyfð, væru ákvæði þingskapanna einkis nýt.