29.12.1916
Neðri deild: 10. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í B-deild Alþingistíðinda. (29)

1. mál, nefnd til að ákveða verð á vörum

Framsögum. (Þorleifur Jónsson):

Það þarf ekki langan formála fyrir þessu örlitla frv., sem hjer liggur fyrir. Nefndin hefir fallist á, að nauðsyn væri á viðauka við verðlagslögin frá 1915. Þar vantaði sem sje heimild til þess, að ákveða mætti sektir, því að reglugjörðin er þýðingarlaus, ef ekki má leggja sektir við brotum.

Jeg skal geta þess, að nefndinni hefir yfirsjest við yfirlestur frv. Þar hefir orðið sú prentvilla, að þar stendur »sekt« fyrir »sektir«. Því get jeg bætt við, að jeg hefi heyrt, að verðlagsnefndin fái litlu umþokað með verðlag. Samt tel jeg bót að nefndinni, til að grípa til, ef úr hófi keyrir, þótt ekki muni auðvelt á þessum tímum að hafa mikinn hemil á verðlaginu.

Vænti jeg þess, að háttv. deild samþykki frv. eins og það liggur fyrir.