12.01.1917
Neðri deild: 25. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 237 í B-deild Alþingistíðinda. (318)

48. mál, afnám laga

Framsm. (Jón Jónsson):

Jeg hefði helst engar umræður viljað hafa um þetta mál, en skal þó segja nokkur orð.

Jeg tel það bæði óþarft og óhyggilegt, að koma fram méð svona frv. nú. Það var talið nauðsynlegt á þinginu í fyrra að samþykkja þennan verðhækkunartoll, til þess að koma þó einhverju lagi á fjárlögin, en hafi það verið nauðsyn þá, þá er hún ekki siður fyrir hendi nú. Það var talsverð óánægja þá í landinu yfir þessum lögum, en nú hefir viljað svo vel til, að við framkvæmd laganna hefir sú óánægja horfið. Það er því ekki nauðsynlegt þessa vegna að afnema lögin. En það er líka óhyggilegt af þeirri ástæðu, að hjer er ekki gjört ráð fyrir því, að nokkuð komi í staðinn. Jeg skil ekki, hvernig háttv. flutnm. (B. J.) ætlast til, að lögin verði afnumin nú, án þess að nokkuð komi í stað þeirra.