27.12.1916
Neðri deild: 6. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í B-deild Alþingistíðinda. (350)
13. mál, einkasala á steinolíu
Sveinn Ólafsson:
Jeg vil lýsa því yfir, að jeg er samdóma háttv. þm. Dala (B. J.) í því, að vísa beri máli þessu til fjárhagsnefndar. Býst jeg ekki við, að úrslit fáist nú á málinu fyrir því, en tel víst, að undirbúningur verði þá betri.
Annars vildi jeg benda nefnd þeirri, sem með málið kann að fara, á það, að jeg tel fyrirsögn frv. ekki nógu víðtæka. Vil jeg bæta þar inn í „smurningsolíu og bensíni“. Landið ætti ekki síður að hafa verslun þessarra olíutegunda á hendi. Þarf ekki annað en benda á, hvernig ástatt var í sumar er leið, þá er miklu erfiðara var að fá þær vörutegundir, heldur en steinolíu. Vil jeg vekja athygli nefndarinnar á þessu, og vona, að hún taki það til greina.