02.01.1917
Neðri deild: 12. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 275 í B-deild Alþingistíðinda. (360)

22. mál, fasteignamat

Magnús Guðmundsson:

Jeg vil leyfa mjer að beina þeirri fyrirspurn til háttv. flutnm. (Þ. J.), hvernig þeir hugsi sjer þessari breytingu komið fyrir, hvort þeir ætlist til þess, að henni verði komið á þar, sem matinu er þegar lokið. Jeg veit dæmi þess, að matinu er þegar lokið í hálfri sýslu, og yfimati einnig í nokkrum hluta. Svo er það í Skagafirði. Er það nú meining háttv. flutningsmanna, að breytt sje matinu eða það látið standa, þótt ósamræmi yrði í?