02.01.1917
Neðri deild: 12. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 276 í B-deild Alþingistíðinda. (361)
22. mál, fasteignamat
Flutnm. (Þorleifur Jónsson):
Vjer flutnm. höfum ekki, beint tekið þetta atriði til íhugunar, með því að oss var ekki kunnugt um það, að mati væri nokkurs staðar lokið. En þótt svo sje, þá virðist rjettast, að láta við það sitja, og ekkert ósamræmi virðist skapað með því, þótt mat hafi þegar farið fram eftir lögunum, og sje látið standa. Það, sem fyrir oss vakir með frv., er að eins það, að gjöra mönnum hægara fyrir, þann veg að ekki þurfi að meta sjer smáskækla. En þetta á ekki að valda truflun, þótt matið hafi þegar að einhverju leyti farið fram í einni eða tveim sýslum.