09.01.1917
Neðri deild: 18. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 279 í B-deild Alþingistíðinda. (366)

22. mál, fasteignamat

Pjetur Þórðarson:

Það var minst á það við 1. umr. málsins, að 2. gr. kæmi í bág við það, sem búið væri að vinna að fasteignamati. En þá var líka sýnt fram á, að svo þyrfti ekki að vera, heldur mætti það standa sem búið væri að gjöra, en ákvæðið næði að eins til þess, sem ógjört væri af matinu.

Það hefir líka komið í ljós, að ómögulegt er að meta jarðir, sem að mestu eða öllu leyti hafa lagst undir aðrar jarðir, og er því nauðsynlegt að breyta lögunum.

Annars er 2. gr. frv. ekki annað en skýring á 9. gr. laganna. Það hefir komið í ljós, að sú gr. er svo svo óljós og óákveðin, að misskilningi hefir valdið, og jafnvel leitt til þess, að raskast hefir rjett hlutfall við matið.

Má þó segja, að í þessari 2. gr. frv. sje nýtt ákvæði að því leyti, að þar er farið fram á að umbætur síðustu 10 ára, skuli ekki verða metnar til skatts. Þetta eru þá aðalbreytingarnar, sem í frv. standa og hefir þeim að eins verið vikið ofurlítið við í nefndarálitinu, og vona jeg að háttv. deild finni ástæðu til að láta þær ná fram að ganga.

Viðvíkjandi kauphækkuninni, þá virtist mjer, að hv. 2. þrr. Eyf. (E Árna.) teldi hana ekki gjörlega. Jeg mæli heldur ekki beint með henni min vegna, og get mælt það af reynslu, að með því að vinna 16—18 stundir á dag, geta menn unnið að matinu sjer að skaðlausu. En annars sjá allir, hve sanngjarnt það er, að ætlast til slíks fyrir ekki hærri borgun.

Sami hv. þm. (E. Árna.) sagði líka, að engar óskir hefðu legið frammi frá matsmönnunum um kauphækkun. Þó er mjer kunnugt um það, að lögð var hjer fram á lestrarstofu, þegar í þingbyrjun, áskorun um að hækka kaupið upp í 7 kr. á dag. Minnir mig að áskorun þessi hafi komið úr Gullbringusýslu. Sú kauphækkun fyndist mjer alls ekki ósanngjörn. En með þessu vildi jeg að eins benda á það, að óskir hafa komið fram um tilhlýðilega hækkun. En þar sem útlit er fyrir, að ágreiningur geti risið af þessu atriði, þá ætla jeg ekki að gjöra það að neinu áberandi kappsmáli, og mun jeg því heldur við 3. umr. koma með brtt. um að þessi gr. frv. verði feld burt, heldur en að frv. fyrir hana nái ekki fram að ganga.