09.01.1917
Neðri deild: 18. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 280 í B-deild Alþingistíðinda. (367)

22. mál, fasteignamat

Þorleifur Jónsson:

Jeg vil lýsa ánægju minni yfir því, að landbúnaðarnefndin hefir orðið sammála um aðalatriðin, sem sje um breytinguna á 9. gr., því eins og hún er orðuð í lögunum, þá litur svo út, sem ábúðarskatt skuli greiða af öllum húsum, sem á jörðinni standa, eins þótt leiguliðahús sje. En slíkt væri rangindi, þar sem ýms skilyrði geta breytst frá ári til árs, eftir því sem leiguliðar skifta um verustað. Er því órjett að leggja kvaðir á slík hús.

Launahækkunina fer jeg lítið út í; tel það smávægilegt atriði, sem gjörir hvorki til nje frá. Jeg get reyndar játað það, að kaup það, sem nú er ákveðið, er ekki rausnarlegt, en virðist það þó ekki skifta svo miklu máli, að hugsanlegt sje, að frv. verði látið stranda á því.

Þá mintist háttv. framsm. (J. J.) á það, hvort rjett væri að draga prestsmötu undan. Það gæti verið álitamál. Nefndin leit svo á, að þess væri ekki þörf, og er jeg því samþykkur. En auðvitað er það sjálfsagt, að taka tillit til kvaða, sem á jörðunum hvíla, svo lægra verði matið, og þar af leiðandi lægri skattur.