02.01.1917
Neðri deild: 12. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 290 í B-deild Alþingistíðinda. (380)
24. mál, stofnun Brunabótafélags Íslands
Matthías Ólafsson:
Það hefir oft verið minst á það, hve óhæfilega hraðir vjer værum í því, að breyta nýjum lögum, án þess að sýnt væri, að nauðsyn bæri til. En sjaldan hefir skörin færst svo upp í bekkinn sem nú, þegar farið er fram á að breyta lögum, sem fyrst gengu í gildi í gærdag. Það er auðvitað sjálfsagt, að hika ekki við að breyta lögum, þegar um nauðsyn er að ræða. En í þessu efni sje jeg enga nauðsyn. Ástæðurnar fyrir þessu frv. eru lítils virði. Það er á hvers manns vitorði, að ef maður er skuldugur, þá getur hann ekki fengið lán út á húseign sína, nema hún sje vátrygð. Þetta sannar þá, að þeir, sem ekki þurfa að vátryggja hús sín, eiga þau skuldlaus að miklu eða öllu leyti, og geta þeir menn naumast talist fátækir, er eiga alt að 6.000 kr. eign skuldlausa og því vorkunnarlítið að borga 5/6 iðgjaldsins. Og engi er svo fátækur, ef hann á hús, að hann geti ekki klofið að borga þetta litla iðgjald. Hugsum oss, að maður eigi hús, sem kostað hefir 4.000 kr., en nú, vegna ófriðarins, er metið 6.000 kr. Iðgjaldið er 7 pro mille eða alls 42 kr., en þar sem eigandirm greiðir að eins 5/6 iðgjaldsins, þá nemur greiðslan að eins 35 kr. En það er mjer dulið, hvernig háttv. flutningsmenn tla sjer að telja mönnum trú um, að maður, sem á 6.000 kr. húseign, geti ekki borgað 35 kr. iðgjald árlega.
Jeg veit, að þetta frv. er framkomið af umkvörtunum manna á Akranesi, þótt það sje eitt hið besta „pláss“ á landinu og fátækt lítil.
Það annað, sem jeg hygg, að hafi komið háttv. flutnm. (P. O.) til að koma fram með þetta frv., er það, að hann álítur brunabótalögin ganga of nærri persónulegu frelsi manna, þar sem mönnum sje gjört að skyldu, að tryggja eigur sínar fyrir eldhættu. En nú vil jeg spyrja háttv. þm. (P. O.). Hvernig í ósköpunum hugsar hann sjer, að hægt sje að halda saman þjóðfjelagi, þar sem ekki eru lögð nein höft á einstaklingsfrelsið ?
Jeg verð að vona, að þessi háttv. deild taki þetta frv. ekki til greina.
Jeg held, að lögin frá í fyrra sje góð, og jeg hygg, að það sje eini gallinn á þeim, að þau gjöra ekki að skyldu, að tryggja nema 5/6 hluta verðs, og menn eiga ekki kost á, að fá meira trygt. Jeg hygg, að heppilegra yrði, að menn fengju að tryggja fyrir fult verð.
Jeg hygg, að yrði þetta frv. samþykt, þá yrði það til ills eins bæði fyrir fjelagið og einstaklingana.