04.01.1917
Neðri deild: 14. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 306 í B-deild Alþingistíðinda. (393)
26. mál, landauralaun
Gísli Sveinsson:
Heldur háttv. þm. Dala. (B. J.), að frv. breyti engu um launin? (Bjarni Jónsson: Já). Þá sje jeg ekki, hvað unnið er við frv. En aftur er það bert, hve mikla hugmynd háttv. þm. (B. J.) hefir um þetta mál, sem hann ber fram.
Rökstuddu dagskrána, sem þm. V.-Sk. (G. Sv.) hafði borið fram (sjá 1. ræðu hans um þetta frv.), tók hann aftur, og var hún því aldrei borin undir atkvæði.