18.12.1916
Neðri deild: 2. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í B-deild Alþingistíðinda. (40)

3. mál, ráðstafanir til tryggingar aðflutninga til landsins

Framsögum. (Magnús Guðmundsson):

Eins og nefndarálitið á þgskj. 22 ber með sjer, hefir nefndin orðið samdóma um, að nauðsyn beri til, að frv. í þessa átt verði gjört að lögum, og hefir eigi heldur neitt við orðalag frv. að athuga.

Hefi jeg því ekki öðru við að bæta, frá nefndarinnar hálfu, ef mótmæli koma eigi fram, en óska að háttv. deild láti frv. ganga áfram.