04.01.1917
Neðri deild: 14. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 315 í B-deild Alþingistíðinda. (409)

16. mál, lánastofnun fyrir landbúnaðinn

Gísli Sveinsson:

Það er ekki mikið, sem jeg hefi að segja um þetta mál nú, allra síst þar sem háttv. flutnm. till. (S. S.) felst á brtt. mína, og jeg get látið mjer nægja að þessu sinni, að vísa til orða hans. Það er rjett hjá honum, að tillögurnar eru samskonar að efninu til, en hans tillaga er svo orðuð, að jeg tel hæpið, að landsstjórnin mundi fara eftir henni. Hún verður nefnilega ekki skilin á annan veg en þann, að landsstjórninni sje skipað að koma með svo vaxið frv. og leggja það fyrir þingið, hvort sem hún telur það heppilegt eða ekki, og hvernig sem hún lítur á málið; þessu vildi jeg breyta. Jeg býst við að tillaga mín verði samþykt, því jeg hygg, að öllum háttv. þingdeildarmönnum sje það ljóst, að þörfin á slíkri lánsstofnun er mikil. Tel jeg svo óþarft, að fara um þetta mál fleiri orðum.