04.01.1917
Neðri deild: 14. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 21 í B-deild Alþingistíðinda. (44)
3. mál, ráðstafanir til tryggingar aðflutninga til landsins
Bjarni Jónsson:
Mjer þykir hafa verið helsti hljótt um frv. þetta, og vil jeg ekki að það fari orðalaust út úr deildinni. Við 3. umræðu er heimilt að ræða mál almennt, og mun jeg því nú leyfa mjer að gjöra nokkrar athugasemdir.
Lög þessi eru einföld að orðalagi, því að þar stendur að eins, að ráðherra megi gjöra nauðsynlegar ráðstafanir til þess að tryggja aðflutninga að landinu. En þau eru þó eigi svo einföld, sem þau sýnast. öllum er það auðsætt, að þessi heimild frá konungi er í framkvæmd bundin ýmsum skilyrðum, sem ganga langt um lengra en orðalagið bendir til. Því að bæði verður að hafa úti sendimenn og semja við stjórnir annara ríkja. Þetta vona jeg að allir skilji, að um leið og einhver framkvæmd er leyfð, þá er og leyft að framkvæma og fullnægja öllum skilyrðum þess, að fram gangi það, er til var stofnað.
Hvað liggur þá í þessum lögum?
Ýmsar merkilegar og mikils verðar viðurkenningar á rjetti þessa lands, sem jeg vil orða hjer, þótt jeg viti að þingmenn skilji þær, svo að það sjáist einhversstaðar, að Alþingi hafi horft opnum sjónum á málið.
Þar er þá fyrst á að líta, að þegar konungur felur stjórn Íslands þessi mál, þá sýnir það, að hann þykist bær að fela henni þau. En með því viðurkennir hann skoðun vor Íslendinga, þá skoðun, að konungur sje einvaldur í þeim málum Íslands, sem koma eigi undir Alþingi, og að hann, einvaldinn, geti því falið stjórn vorri þetta. — Konungur viðurkennir þá með þessu, að rjett sje skýrt frá rjettindum Íslands í hinni ágætu og ágætlega rökstuddu ritgjörð Jóns Sigurðssonar, þar sem hann heldur því fram að Ísland hafi aldrei viðurkent nein erlend yfirráð, nema konungssamband samkvæmt gamla sáttmála. Þeir Jón Þorkelsson og Einar Arnórsson hafa safnað saman skilríkjum fyrir þessu í Ríkisrjettindum Íslands, og Einar síðan rakið nánar í hinni ágætu bók sinni, er Alþingi veitti fje til að gefa út á þýska tungu og væri nú komin út á þá tungu, ef ófriðurinn hefði eigi hamlað því. Jeg hefi og gefið út bækling, þar sem sannað er með ljósum rökum, að síðustu hundrað árin hefir engin slík viðurkenning verið gefin, og að Ísland var að lögum laust við öll erlend yfirráð og sáttmála sinn við erlenda konunga eftir friðinn í Kiel. því ber að líta á sambandið milli vor og konungs sem Gjelsvik gjörir í bók sinni um sambandsslit Norðmanna og Svía, mig minnir á 22. bls. Tveir ágætir Íslands vinir halda og fram þessari skoðun, Ragnar Lundborg í bók sinni um rjettarstöðu Íslands, og hverfur að því síðar í þrem öðrum bókum, og Paul Hermann í bók sinni »Ísland«. Og nú er þessi skoðun viðurkend með því, að konungur hefir falið stjórn vorri þær framkvæmdir, sem gjöra samninga við önnur ríki nauðsynlega. Hann hefir þar með afhent oss jus foederum et tractatuum, og þar sem nauðsyn er að hafa menn úti til samninganna, þá kemur jus legationum, sem afleiðing af hinu. En jus belli et pacis höfum vjer ætíð haft, því að vjer höfum aldrei verið herskyldir, og hermál vor því aldrei komið undir yfirráð erlendra konunga.
En fleiri hafa nú viðurkent þetta en konungurinn. Það er alkunna að Danir, þ. e. dönsk stjórnarvöld, hafa þótst hafa rjett til þess að ráða yfir fullveldismálum vorum. En nú tekur konungur þessi mál af þeim og fær þau öðrum, og þeir þegja við. Með því viðurkenna þeir, að hann ráði þeim málum einn, og að þeir hafi að eins farið með þau eftir umboði einvaldans, og að hann sje bær að taka þau af þeim og fá þau öðrum.
Þetta mun jafnan verða talinn merkisviðburður í sögu lands vors, því að vjer höfum eigi getað losað þessi mál úr höndum Dana hingað til. En nú ætti það að takast, er þessar viðurkenningar eru fengnar, og er þá vel.
Þyki mönnum hjer nokkurs á vant, þá má geta þess, að svo verður að líta á, að eitt stórveldi hafi að minsta kosti viðurkent Ísland sem sjálfstætt ríki. því að Bretar hafa samið við Ísland, án þess dönsk stjórnarvöld kæmi þar nærri, og er það full sönnun þess, er jeg segi. Verkin ljúga ekki og verða eigi vjefengd.
Jeg gat eigi látið hjá líða að benda á, hvað hjer hefir fram farið, þótt jeg viti að allir þingmenn muni hafa gjört sjer þetta ljóst. Jeg hefi þá að eins leyst bundna hugsun þeirra.
Spurningin um hitt, hvort vel hafi verið samið eða illa, kemur þessu máli ekkert við. Hvað sem segja má um þá hlið samninganna, er sú hliðin, er jeg hefi ná lýst um stund, ekki nema góð.