08.01.1917
Neðri deild: 17. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 349 í B-deild Alþingistíðinda. (456)
30. mál, lán til flóabáta
Hákon Kristófersson:
Út af viðaukatill. á þgskj. 96 vildi jeg segja nokkur viðeigandi orð. Eins og hún ber með sjer, er þar farið fram á alt að 10 þús. kr. fjárveitingu til mótorbátsferða í Vestfjörðum. Eins og menn munu hafa sjeð, er hjer að eins að ræða um heimild, ef flutningaþörfin krefur. Mjer er í fersku minni, að 1915 var mikið rætt og ráðgjört um samgöngur, en ekki varð mikið úr sumum þeim blómlegu fyrirætlunum. Nú eru líka gjörðar fagrar áætlanir, en líti maður til liðna tímans, er full ástæða til að vera við því búinn, að eitthvað gæti farið út um þúfur af þeim ráðagjörðum, sem hjer eru á döfinni. Þar við bætist og, að samkvæmt millilandaferðaáætlunum eru helstu viðkomustaðir millilandaskipanna í Reykjavík og á Ísafirði. Á þessum stöðum verður að skipa upp vörum þeim, er fara eiga á aðrar hafnir, sem og til Vesturlands, er liggja milli þessara staða. Sjá þá og allir, hver þörf er á flutningatækjum til að flytja þessar vörur t. d. frá Ísafirði til annara stöðva á Vestfjörðum. Enn fremur þyrfti slíkur bátur að geta farið þarfaferðir til Reykjavíkur.
Jeg get því miður ekki þakkað sem skyldi hv. frsm. (Þorst. J.) fyrir þær góðu undirtektir, sem jeg bæði hefði getað búist við af honum, og mjer finst mál þetta ella eiga heimtingu á. Jeg legg stóráherslu á, að hjer er einungis að ræða um heimild, ef þörf krefur.
Vænti jeg, að háttv. deild sjái, að viðaukatill. er sæmilega sanngjörn, og leyfi henni fram að ganga, og sömuleiðis vænti jeg, að till. á þgskj. 95 verði samþykt eins og skylt er.