11.01.1917
Neðri deild: 21. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í B-deild Alþingistíðinda. (47)
4. mál, Íslandsbanka leyft að auka seðlaupphæð
Ráðherra Björn Kristjánsson:
Jeg hefi hugsað mjer, að láta frv. þetta hlutlaust, eins og það liggur nú fyrir, eftir breytinguna í Ed. Þótt stjórnin taki á móti þessari heimild, þá er hún sjálfráð um, hvort hún notar hana eða ekki.
Mín persónulega skoðun á seðlaútgáfu hjer á landi er kunn, og er hún óbreytt. Svo þekkja menn og þá skoðun mína, að Ísland, eins og öll önnur siðuð lönd, þurfi að tiltölu á gullmynt að halda, en þá þörf getur landið ekki uppfylt, á meðan það útrýmir öllu gulli úr landi, með takmarkalítilli seðlaútgáfu.
Og hver seðill útrýmir jafngildi sínu í gulli úr landinu, eða varnar því, að gullið komi inn í landið.
Að öðru leyti mun mál þetta verða athugað nánar á þinginu í sumar.