11.01.1917
Neðri deild: 21. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 377 í B-deild Alþingistíðinda. (493)
43. mál, skipagöngur sameinaða gufuskipafélagsins
Einar Arnórsson:
Það var að eins örlítil athugasemd. Viðvíkjandi 3. ástæðunni, þá misskildi jeg alls ekki háttv. framsm.
Jeg sagði að eins og sýndi fram á, að sú ástæða gæti alls ekki komið til greina, þar sem fjelaginu getur verið arðvænlegra að fá flutning í Englandi, frá Leith til Kaupmannahafnar, heldur en hjer.
Jeg sagði ekki, að hv. framsm. teldi fjelaginu það vorkunnarmál, þótt það teldi þetta ástæðu til samningsrofa, heldur ljet jeg í ljós furðu mína á því, að bann fór ekki harðari orðum um slíka yfirskinsástæðu.