10.01.1917
Neðri deild: 19. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 395 í B-deild Alþingistíðinda. (501)

42. mál, dýrtíðaruppbót handa embættis- og sýslunnarmönnum landssjóðs

Bjarni Jónsson:

Jeg ætlaði upphaflega að bíða með að taka til máls, uns flutningsmenn till. um sveitastjórnir og bæja hefði látið til sín heyra, en nú hefi jeg heyrt, að þeir væri búnir að taka aftur tillögu sína og þykir mjer það leitt, svo kostuleg var sú tillaga. En jeg býst samt við, að jeg geti ekki stilt mig um að minnast einhvern tíma á hana.

Jeg ætla að byrja á því, sem háttv. síðasti ræðumaður (S. S.) mintist á, að margir þm. væri hjer að veita sjálfum sjer fje, með því að samþykkja tillögu nefndarinnar.

Út af þessu atriði vil jeg leyfa mjer að beina þeirri spurningu til hæstv. forseta, hvort þingmenn hafi samkvæmt þingsköpunum leyfi til að greiða atkv. um þau mál, sem þeir eiga sjálfir hlut að. Það kann að orka tvímælis, hvort slíkt sje vel við eigandi, og vil jeg því vekja athygli háttv. þm. á því, hvort háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) eigi að hafa atkvæðisrjett í þessu máli.

Annars heyrðist mjer á háttv. þm. (S. S.), að hann væri eitthvað að tala um, að sumir menn þyldu ekki, að landssjóðurinn væri fullur, en vildu helst, að alt af væri tómahljóð í honum. Jeg veit ekki hvort þessum ummælum átti að vera beint til nokkurra ákveðinna manna. (Sigurður Sigurðsson: Að minsta kosti ekki til háttv. þm. Dala.). Það var ekki heldur vert.

Hjer stendur alveg sjerstaklega á. Á seinasta þingi var lagður þungur skattur á framleiðslustjettir landsins, verðhækkunarskatturinn svo nefndi. Hann var í raun og veru óþarfur og órjettmætur, þar sem að eins frá tveimur stjettum hefir safnast á aðra miljón kr. í landssjóðinn. En úr því að þetta var gjört, þá eiga bændur nú að sjálfsögðu að gæta þess, að þetta fje fari nú ekki til annars, en að jafna milli stjettanna í landinu. Þeir sem betur standa að vígi, eiga að leggja nokkuð af mörkum til hinna, sem ver eru staddir. Það er nóg fje til, til þess að jafna þenna mismun og bæta kjör þeirra manna í landinu, sem illa stendur á fyrir. Það var ekki tilætlunin, að þessi miljón yrði lögð í sparisjóð, heldur að henni yrði varið skynsamlega, til þess að bæta kjör þeirra, sem bágt eiga. Jeg er hræddur um, að kjósendur muni sjá í gegnum slíka reikninga, og vera lítið þakklátir sparnaðarpostulum sínum fyrir þá.

Það sem hjer liggur fyrir, samkvæmt þingsályktunartill., er að bæta laun starfsmanna landssjóðs. Jeg þarf í rauninni ekki að fjölyrða mjög um hana, því að háttv. framsm. (G. Sv.) hefir greinilega tekið fram alt það, sem máli skiftir í öllum aðalatriðum. Það er að eins eitt orð. Jeg vil ekki að þetta sje nefnd hjálp. Eins og hæstv. forsætisráðherra (J. M.) gat um, þá er það fullkomin rjettlætiskrafa, að allir starfsmenn landssjóðs fái kauphækkun, ef byggja má á því, að launin hafi verið rjettlát á undan stríðinu. En þar sem jeg gjörði ekki ágreining um það atriði, að hinir hæstlaunuðu starfsmenn landssjóðs fá enga uppbót, þá var það af því, að jeg get hugsað mjer að landssjóður segi við þá: Með ykkur hefi jeg farið svo vel undanfarið, að jeg þykist ekki vera nauðbeygður til að bæta ykkur skaðann, sem þið hafið orðið fyrir vegna dýrtíðarinnar. En um hina lægra launuðu er öðru máli að gegna. Þá hefi jeg haldið illa, og fyrir því bæti jeg þeim upp hallann.

Þetta getur landssjóður sagt með nokkurri sanngirni, þó að það sje eigi fullkomlega rjett. En þar sem jeg hugsa mjer hann segja þetta, vegna þess að hann hefir í svo mörg horn að líta, þá get jeg líka hugsað mjer fleira, sem þarf að taka til greina, þegar að um það er að ræða, að hjálpa mönnum í dýrtíðinni. Jeg get ímyndað mjer, að það sje ekki einungis opinberir starfsmenn landssjóðs, sem styrkja beri, heldur eigi líka að verja þessu fje til þess að bæta hag allra fátækra manna í landinu, sem eru nauðulega staddir, vegna hins háa verðs, sem er bæði á innlendum og útlendum vörum. Og jeg býst við, að nefndin sýni áhuga í að styrkja, eigi að eins embættismenn landssjóðs, heldur og alla nauðstadda menn í landinu. Og einmitt af því, að þetta ber eigi að skoða sem fátækrahjálp, heldur uppbót á kaupi, þá finst mjer ástæðulaust með öllu að taka það nokkuð til greina, hvort þessir starfsmenn eru ríkir eða fátækir.

Jeg fæ eigi sjeð, að nokkurt rjettlæti sje í því fólgið, að neita mönnum um kauphækkun fyrir það, að þeim hefir t. d. hlotnast arfur, eða að þeir hafa unnið sjer meira fje en alment gjörist, með dugnaði, en veita svo mjer hækkunina. Menn verða að gæta þess, að hjer er um verkamenn að ræða, og það er eins og máltækið segir, að „verður er verkamaðurinn launanna“. Hugsum okkur þrjá vinnumenn. Tveir þeirra eru fátækir, en einn duglegur og efnaður. Mundi nú sá efnaði og duglegi halda áfram þjónustu sinni hjá húsbóndanum, ef hann hækkaði kaup þeirra fátæku þrátt fyrir þetta, en ljeti hann sitja við sömu kjör. Jeg vil beina þeirri spurningu til bænda, hvort þeim mundi detta í hug, að bæta kjör vinnumanna sinna á þenna hátt. Landssjóður er hjer vinnuveitandi, og hjálpin, sem hann veitir starfsmönnum sínum, er ekki fátækrastyrkur, heldur vinnulaunauppbót. Og væri það ekki smán, ef hann segði: Jeg geld ekki þeim þessa uppbót, sem fengið hafa fje annarsstaðar frá.

Íslenska ríkið getur ekki varið oss því tjóni, sem yfir oss vofir, nje bætt oss þann skaða, sem dýrtíðin hefir í för með sjer. Það getur að eins bætt hann hálfan.

Jeg skal benda á tvent, sem mjer finst órjettlátt í breytingartill. í fyrra lagi er það, að gjörður sje munur á búsettum mönnum og þeim, sem ekkert bú hafa. Þessi munur er að mínum dómi órjerttlátur. Jeg skal taka sem dæmi einhleypan starfsmann landssjóðs, sem hefir 1.500 kr. kaup og annan kvæntan, sem hefir jafnmikið kaup. Gifti maðurinn fær dýrtíðaruppbót, en hinn ókvænti enga. Hjer er þess ekki gætt, að kvænti maðurinn losnar við mörg útgjöld, sem hinn ókvænti þarf að inna af hendi, einmitt fyrir það, að hann er ókvæntur. Jeg þekki einhleypan mann, sem galt 35 kr. í fæði fyrir stríðið. Nú verður þessi að gjalda 50 kr. fyrir fæði. Sami maður galt 20 kr. eftir tvö herbergi fyrir ófriðinn. Nú geldur hann 40 kr. fyrir eitt herbergi.

Þetta eru nú kjör einhleypra manna á þessum tímum.

Svo er nú í öðru lagi þess að gæta, að menn, sem taldir eru einhleypir lögum samkvæmt, geta oft átt fyrir ómögum að sjá. Þeir geta átt t. d. veika foreldra, systkini eða önnur skyldmenni. Nú geta slíkir menn að vísu látið þessi skyldmenni sín fara á hreppinn. En bróður eða sonarskyldan knýr þá til að veita þeim umsjá. Þetta er nú eitt dæmi þess, hversu brtt. er ranglát.

Jeg þekki t. d. mann í stjórnarráðinu, sem hefir lágt kaup, er alt af hefir átt fyrir ómögum að sjá, nú í 30 ár. Þessi maður mundi þó vera talinn einhleypur samkvæmt lögum. En geta menn ekki sjeð, hversu það er mikið ranglæti, að veita slíkum manni minni dýrtíðaruppbót heldur en kvæntum manni, sem á ef til vill fyrir engum ómögum að sjá. Og svo er það, að einhleypur maður getur verið nýkominn frá examens-borðinu, hlaðinn skuldum, og síðan reynir löggjöfin að verða honum þröskuldur í vegi með því að svifta hann þeirri hjálp, sem alt rjettlæti mælir með, að hann eigi að fá. Það verður aldrei neitt vit í þessari dýrtíðarhjálp með því að leggja þann mælikvarða á stöðu manna og ástæður. Í slíkum tillögum hoppar ranglætið eins og fló á skinni.

Alveg sama máli er að gegna um framleiðendur. Í viðaukatillögunni er það talið óhæft, að starfsmenn landssjóðs, sem hafa tekjur af framleiðsluatvinnu á sjó eða landi, sem nemi 600 kr. á ári eða meiru, fái dýrtíðaruppbót. Þessi tillaga er líka í fyrsta lagi ranglát. Tökum til dæmis prest, sem býr á sveitajörð. Vegna dugnaðar, góðra búmannshæfileika og ef til vill endurbóta á jörð þeirri, sem hann situr, hefir hann meira en 600 kr. tekjur af búi sínu. Síðan á þessi maður að gjalda þess, að hann kann að búa og hefir ræktað vel jörðina. Og svo er annar, sem situr góða jörð, en kann ekki að búa. Hann fær umbun fyrir það, að hann er amlóði í búskapnum og hefir ef til vill nítt niður jörðina. Sjá menn nú ekki, hversu hörmulegt ranglæti er fólgið í því, að svifta dugnaðarmanninn dýrtíðaruppbót, einungis fyrir það, að hann er atorkumaður, en veita þeim hjálpina, sem eigi hefir lánast að búa sakir ódugnaðar.

Jeg er hræddur um, að hv. 1. þm. Árn. (S. S.) mundi þakka fyrir, ef ætti að styðja landbúnaðinn með þessu móti.

Þessar brtt. eru mestu vanmetaskepnurnar, sem fæðst hafa hjer í deildinni. Þó að stjórnin fari nákvæmlega eftir þeim í framkvæmdinni, fer því fjarri, að þær borgi tímatöfina, og kostnaðinn, sem það mundi hafa í för með sjer. (Forseti: Jeg vil vekja athygli hv. þm. á því, að tillögur, sem teknar hafa verið aftur, eru ekki hjer til umræðu). Jeg hefi ekki heyrt, að tillögurnar hafi verið teknar aftur, en fyrst svo er, skal jeg geyma mjer það, sem jeg átti eftir. En jeg býst samt við, að þær sje ekki alveg dauðar, heldur muni einhver kyngikraftur vekja þær upp aftur.

Þá kem jeg að brtt. minni viðvíkjandi ágreiningnum milli mín og nefndarinnar, um að skáld, listamenn og vísindamenn, sem njóta styrks úr landsjóði, fái einnig dýrtíðaruppbót. Nefndin vill eigi veita þessum mönnum neina uppbót. Þetta tel jeg vera rangt. Þessir menn eru starfsmenn landssjóðs, alveg eins og ráðherra og sýslumenn, því að í hvaða skyni er þeim veittur styrkurinn, ef það er ekki fyrir vinnu, sem þeir leysa af höndum í þágu þjóðfjelagsins? Og hvaða vinna er þarfari og dýrmætari en störf þessara manna, sem leggja velferð sína, líf, æru og krafta og von um allan gróða í sölurnar fyrir vinnu, sem er alls ekki arðberandi hjer á landi? Slíkir menn inna þó þarft verk af höndum. Þeir fórna eignu blóði sínu í þarfir hugsjónanna. Og vjer eigum ekki kost á svo mörgum miklum gáfumönnum, ef til vill örfáum á heilli öld, að vjer megum við því, að þeir þjóni bæði sultinum og hugsjónunum. Allir vita, hve erfitt þeir menn eiga uppdráttar og hve starfsþrek þeirra lamast, sem eigi geta notið sín nema til hálfs. En hvers vegna á þá að undanskilja þessa menn dýrtíðarstyrk, úr því að þeir eru þjónar landssjóðs, og ekki verstu þjónarnir, heldur bestu?

Hjer kemur það fram sem oftar á Alþingi, að þingmennirnir hegða sjer sem dómarar. Þeir dæma menn eftir ákveðnum lagabókstöfum. En þetta er fullkomlega misskilningur. Þingmennirnir þurfa ekki og eiga ekki að láta ákveðin orð binda sig um of. Engin lögbók skipar heldur svo fyrir, að eigi megi greiða öðrum en föstum starfsmönnum landsjóðs dýrtíðaruppbót. Meira að segja, er farið fram á, að einnig þeir, sem ekki eru fastir starfsmenn landsjóðs, fái uppbót, t. d. kennarar við barnaskóla. Eru þeir þó engu bundnari starfsmenn en skáld, listamenn og vísindamenn, sem njóta landssjóðsstyrks. Það er því hart, að þessir menn sje alveg settir hjá, sem hafa göfugasta verkið á hendi og leggja mest í sölurnar til þess að vinna það; þetta eru mennirnir, sem landið ætti að fara best með, en ekki verst. Það gæti líka dregið dilk á eftir sjer, ef þessir menn yrði undanskildir dýrtíðarhjálp. Ekki að eins mentamennirnir, heldur og allir, sem styrks njóta úr landssjóði, munu heimta, og allur almenningur, að allir slíkir styrkir verði hækkaðir. Fyrir þá, sem aurana telja, er þetta því óhyggilegt. Annars ættu háttv. þm. að athuga það, að það gæti verið varhugavert, að ofra mannslífinu fyrir nokkrar krónur, eigi síst í landi, sem á ekki völ á fleiri gáfumönnum en vjer eigum. Sá sparnaður er ekki góður, og jeg er sannfærður um, að hann mundi mælast illa fyrir.

Jeg skal svo ekki fjölyrða frekar um þessa tillögu.