10.01.1917
Neðri deild: 19. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 420 í B-deild Alþingistíðinda. (507)

42. mál, dýrtíðaruppbót handa embættis- og sýslunnarmönnum landssjóðs

Jón Jónsson:

Af því að jeg var einn í fjárveitinganefndinni, leyfi jeg mjer að segja nokkur orð. Jeg skrifaði undir nefndarálitið með það fyrir augum, að enginn yrði undanskilinn uppbót, nema hann hefði yfir 500 krónur í aukatekjur, eins og menn geta sannfærst um af tillögunni. Og þó að till. 102 væri tekin aftur, var það eigi af því, að okkur flutningsmönnum væri það ljúft, heldur vegna þess, að við þóttumst verða varir við úlfaþyt nokkurn í deildinni, og óttuðumst, að ágreiningur mundi verða á milli deildanna, ef kapp væri lagt á, að koma þessari tillögu fram. Vil jeg geta þess strax, til þess að öllum sje ljóst, hvað fyrir mjer vakir, að jeg vil skjóta þessu máli til háttv. Ed. og tel hyggilegast, að gjörðar sje á nokkrar breytingar, svo að málið nái fram að ganga.

Það er ekki rjett, sem háttv. framsm. (G. Sv.) sagði, að nefndin hafi verið sammála um, að falla frá dýrtíðaruppbót. Það hefir verið mikið talað um og misjafnt, hvernig líta megi á styrk þenna, og sumir skoða það sem fátækrastyrk, að gjöra upp á milli manna, eftir því sem efni þeirra og aðrar ástæður horfa við. Telja sumir till. sambland af rjettlætistilraun og hjálpsemi fúsleika, og háttv. framsm. (G. Sv.) ljet það í ljós, að hjer væri að ræða um viðurkendan fátækrastyrk. (Gísli Sveinsson: Alls ekki fátækrastyrk). En jeg vil geta þess, að þó hjer sje verið að tala um fátækrastyrk, er það alls ekki rjett. Þvert á móti yrði dýrtíðaruppbótin veitt, eftir bestu kynningu og þekkingu, ef farið væri samkvæmt till. Það er erfitt að fá fullkomnar upplýsingar um ástæður manna og efnahag, og jeg skal játa, að mjer þykir þessi till. 132 verri en hin, því að það er ekki eins mikið rjettlæti og jöfnuður í henni. Þá vil jeg og benda á, að það er ástæðulaust að veita öllum dýrtíðaruppbót, t. d. farandkennurum. Þeir fá ókeypis fæði og húsnæði, og kemur þá ekki annar kostnaður á þá en ferðalögin. Áhrif dýrtíðarinnar koma ekki beint við þá, vegna þess, að þeir taka kaup og starf að mestu leyti hjá framleiðendum. Og þessir menn eru alls ekki fáir í landinu, svo þó að uppbótin sje ekki há hjá hverjum einum, dregur hún sig saman.

Þá vil jeg og benda á, að það eru ekki svo fáir efnaðir embættismenn í landinu búlausir, og að það er ekki rjett, sem háttv. framsm. (G. Sv.) sagði, að hjer á landi væru sama sem engir þess konar menn.

Jeg sje það á tillögunni, að hún undanskilur þá menn, sem hafa 1.500 kr. í tekjur af framleiðslu, svo að eftir því koma ekki til greina þeir menn, sem hafa miklar tekjur af atvinnurekstri.

Jeg vonast eftir því, að háttv. Ed. taki vel í mál þetta, en jafnvel þó það næði ekki fram að ganga að þessu sinni, er eigi mikil hætta á, að það verði ekki afgreitt í sumar; en samt væri æskilegast, úr því að vjer höfum talað um það hjer í deildinni, að vjer gætum lokið við það nú á sæmilegan hátt.

Háttv. framsm. (G. Sv.), talaði alldjarft, og tók munninn mjög fullan, út af því, að við höfum aðra skoðun en hann og höldum fast við hana. Hann má ekki undrast þetta. En ekki er hitt síður undarlegt, hve lítið menn gjöra úr tekjum embættismanna í samanburði við búandi menn, embættislausa. Og jafnvel þó að launin sje ekki há, eru þau viss, og breytast ekki eftir árferði og erfiðleikum atvinnuveganna. En það gjöra tekjur bændanna og sjávarútvegsmannanna, eða allra þeirra, sem hafa kvikfjenað og sjávarútveg að lífsuppeldi. Og það er ekki næsta langt síðan, að landbúnaðurinn varð fyrir tilfinnanlegum hnekki. Og því erfiðari sem framleiðsluskilyrðin eru til lands og sjávar, þeim mun varlegar þarf að fara, því að tekjur embættismannanna byggjast þó vissulega á framleiðendum í landinu, og því varlega gjörandi, að hækka laun þeirra stórum á hinna kostnað.

Að því er snertir till. hv. þm. Dala. (B. J.), skal jeg geta þess, að hann spurði mig, hvort jeg mundi verða till. hans fylgjandi, og gat jeg eigi dulið fyrir honum, að jeg álíti þessa fyrirspurn hans móðgandi.