10.01.1917
Neðri deild: 19. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 424 í B-deild Alþingistíðinda. (509)

42. mál, dýrtíðaruppbót handa embættis- og sýslunnarmönnum landssjóðs

Jörundur Brynjólfsson:

Jeg ætla að eins að taka fram nokkrar stuttar athugasemdir út af ræðu háttv. framsm. (G. Sv.). Jeg teldi heppilegast, að þessi dýrtíðaruppbót yrði greidd fyrir hvern meðlim fjölskyldunnar, eða miðað við það. Tel jeg því tilgang till. fjárveitinganefndar ekki fullnægjandi. Er öllum ljóst, að það er enginn jöfnuður í því, að ætla sömu dýrtíðaruppbót til fjölskyldu með átta mönnum og þremur, eða einhleypum manni. Á þetta ber að líta við niðurjöfnun uppbótarinnar, og þarf jeg eigi að fara um það fleiri orðum, og vona jeg að háttv. deild sje ljóst, hvað jeg meina, að dýrtíðin er margföld hjá fjölskyldunum, og því margfaldari, sem fjölskyldan er stærri. Þarf jeg eigi annað en minnast á eina nauðsynlegustu fæðutegundina, mjólkina. (Bjarni Jónsson: Verðlagsnefndin lagaði hana). Fjölskyldumaður þarfnast hennar mikið fremur og meira heldur en einhleypur maður. Hækkunin, sem orðið hefir að eins á henni, kemur margföld niður á þeim, er hafa fyrir mörgum að sjá, og svona er um fleira.

Því hefir verið haldið fram, að jeg hafi gjört of mikið úr því, við hve erfið kjör verkamenn hafi að búa, og að jeg teldi dýrtíðaruppbót embættismanna hærri en kauphækkun verkamanna. Í því efni læt jeg mjer nægja að vísa til þess, er jeg hefi áður sagt, og held því enn fram, að kaup verkamanna hefir hækkað að eins um 28% í síðustu tíð, en get þess jafnframt, að jeg geng út frá því, að það hækki í næstu framtíð.

Viðvíkjandi þessari tillögu á þgskj. 132, þá álít jeg hana óheppilegri en viðaukatill. á þgskj. 102, sem var tekin aftur. Hún útilokar ekki að ranglætið heldst áfram engu síður en eftir tillögu fjárveitinganefndar. Það eru að eins einstöku menn, sem verða útilokaðir frá uppbót, og lækkar mikið uppbótina hjá einhleypum mönnum, sem lágt eru launaðir og ekkert mega missa, og sú upphæð, sem sparast, verður auk þess lítill vinningur fyrir landssjóð. Og þar sem þessi viðaukatillaga kemur ekki í veg fyrir ranglætið í tillögu fjárveitinganefndar, finst mjer lítið unnið þó að þessi till. verði samþykt.