10.01.1917
Neðri deild: 20. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 453 í B-deild Alþingistíðinda. (527)
42. mál, dýrtíðaruppbót handa embættis- og sýslunnarmönnum landssjóðs
Jörundur Brynjólfsson:
Jeg drap á það í ræðu minni áðan, að jeg teldi það mjög óheppilegt, að hrapað yrði að þessu máli eins og nú er gjört. Enda er það óspart notað, að ekkert vit geti verið í þeim till., sem nú koma fram, af því að flutningsmenn þeirra geti ekki hafa hugsað rækilega um þær.
Þessi till., sem við hjer berum fram, háttv. 1. þm. Árn. (S. S.), jeg o. fl., er borin fram til þess, að draga úr því misrjetti, sem oss flutnm. finst verða á dýrtíðaruppbótinni, samkvæmt því sem samþykt var hjer við 1. umr. Hún auðvitað bætir ekki úr öllu misrjetti, en jeg hygg samt, að hún sje bót frá því, sem nú hefir verið samþykt hjer í deildinni, þótt jeg hins vegar játi, að jeg er ekki hæstirjettur í því máli, eins og háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) virðist halda að hann sje. Enda sýnist sá þm. hafa þær hugmyndir um sjálfan sig, að hann einn hafi vit á öllu, en aðrir ekki. Jeg býst við, að hann hafi ekki áðan talað fyrir hönd nefndarinnar, og trúi því ekki, að hún vilji standa við alt það, sem hann sagði.
Vík jeg nú nánar að brtt. okkar. Það er þá fyrst, sem jeg hefi áður minst á, að fjölskyldumönnum, er eftir tillögu okkar, að minsta kosti eitthvað í áttina, gjört eins hátt undir höfði og einhleypum. Skal jeg nú taka dæmi til skýringar. Hugsum okkur tvo menn, sem hafa 1.500 kr. árslaun hvor. Annar er einhleypur, en hinn á fyrir 5 börnum að sjá. Dýrtíðaruppbót þessara manna mundi vera 750 kr. eftir till. nefndarinnar. Laun þeirra því samtals 2.250 kr. Nú mun jeg sýna hve miklu meira fjölskyldumaðurinn verður að eyða, en sá einhleypi, þótt maður gjöri ráð fyrir, að þeir fari með jafnmikið í sínar eigin þarfir. Jeg gjöri ráð fyrir, að fjölskyldumaðurinn eigi góða konu, sem sjer um heimilið, og tel jeg hana vinna fyrir fæði og öðru, er hún með þarf.
Nú tek jeg að eins nokkra liði af útgjöldunum. Gjöri ráð fyrir, að hvert barn fái ½ lítra af mjólk á dag. Það verða um 63 kr. á ári, eða því sem næst 320 kr. fyrir 5 börn.
Þá gjöri jeg ráð fyrir, að barnið eyði í skófatnað 20 kr. á ári. Það verða 100 kr. fyrir fimm börn. Í föt áætla jeg 30 kr. fyrir hvert barn. Það verða 150 kr. á ári fyrir þau öll. Þessi maður hefir útgjöld fram yfir þann einhleypa, sem nema 570 kr., og það að eins í þessum fáu atriðum, sem jeg tilnefndi.
En eftir brtt. okkar fengi þessi maður í dýrtíðaruppbót 600 kr., og þar að auki 50 kr. fyrir hvert barn, eða samtals 850 kr., en það er 100 kr, meira en eftir till. nefndarinnar. Og lík þessu mundu hlutföllin verða hjá öllum lágt launuðum mönnum.
Get jeg því ekki sjeð, að þessi brtt. okkar sje að neinu leyti ranglátari en till. nefndarinnar, heldur þvert á móti. Háttv. frsm. (G. Sv.) sagði, að tilgangur nefndarinnar væri sá, að hjálpa þeim, sem þess þurfa, og þræða sem rjettastan veg til þess.
Þetta er líka tilgangur okkar, þótt við ef til vill getum ekki fremur en nefndin, haldið hinum rjettasta vegi; en svo mikið vil jeg þó fullyrða, að okkar leið er rjettari en þeirra.
Get jeg vel hugsað, að við hefðum getað komið með enn betri brtt., ef tíminn hefði ekki verið svona naumur.
En það er öllum ljóst, að þar sem till. nefndarinnar lágu fyrst frammi í gærkvöldi, og í dag var að eins klst. hlje, og nú að eins 10 mín. á milli fyrri og síðari umræðu, þá hefir lítill tími verið til athugunar. Til þess að fult rjettlæti rjeði, hefði maður þurft að þekkja hvern einstakan mann, og reikna uppbótina eftir ástæðum hans.
En þegar háttv. framsm. nefndarinnar (G. Sv.) er að úthúða þessari brtt. okkar, má svo heita sem hann gefi nefndinni utan undir, þar sem hún hefir setið vikunum saman að starfi þessu, og sjálfsagt lagt rækt við, en þó getum við, þrír menn, á tíu mínútum komist að betri og rjettlátari niðurstöðu, sem við svo höfum sett fram í till. þessari.
Háttv. framsm. (G. Sv.) sagði, að nefndin hefði ekki getað fundið rjettlátan mælikvarða fyrir því, að veita fjölskyldumönnum meiri hjálp en öðrum. Þá liggur það í augum uppi, að till. hennar eru ekki allskostar rjettlátar. Það er einmitt tilgangur okkar flutnm. þessarar brtt., að bæta úr þar sem þörfin er mest, og skil jeg því alls ekki hvers vegna háttv. frsm. nefndarinnar fer svo köldum orðum um till. okkar.
Við hefðum að vísu getað látið standa hlutfallsákvæði nefndarinnar um % af launahæð, og þá að eins bætt við aukastyrk til fjölskyldumanna. En við vildum ekki auka gjöldin með því.
Vitanlegt er, að við getum ekki ábyrgst hvaða áhrif þessi brtt. hafi á upphæð fjárveitingarinnar. En líklegt þykir okkur, að hún raski ekki miklu í því tilliti, og stórri fjárhæð, af eða á, getur það alls ekki munað, þótt eftir henni sje farið.
Vel má ver, að þessi till. sje of seint fram borin. En hverjum er það að kenna ?
Við urðum þó að sjá till. nefndarinnar áður en við kæmum fram með brtt. við þær. Háttv. 1. þm. Árn. (S. S.)sagði, að ef ekki hefði bagað hann vanheilsa, þá mundi hann hafa komið fram með svipaða till. áður, Það er því af forföllum, að hún er ekki fyr fram komin. En líklegt þykir mjer, að hún hefði náð fram að ganga, ef hún hefði komið samhliða till. nefndarinnar.
Háttv. þm. Dala. (B. J.), sagði nokkur orð viðvíkjandi þessari till. okkar og fór um hana líkum orðum og háttv. framsm. nefndaeinnar. Að því leyti sem þeir eiga þar sammerkt, læt jeg mjer nægja, að vísa til þess, sem jeg þegar hefi sagt. Vænti jeg þess nú, að hann eða háttv. framsm. sýni fram á, að það sje ranglega mælt, og mun jeg taka mark á þeim athugasemdum, sem á rökum eru bygðar, en öðrum ekki.
Viðvíkjandi því, að þingmenn hafi vanækt þau mál, er til liðs mætti verða landi og þjóð, þá get jeg ekki tekið það til mín.
Fyrir nokkrum dögum kom jeg fram með frv., er jeg sýndi fram á með rökum, að orðið gæti til tekjuauka fyrir landssjóð, ef samþykt yrði, enda var háttv. þm. Dala. (B. J.) stuðningsmaður minn í því máli, og kann jeg honum þakkir fyrir það.
Viðvíkjandi því, að sami háttv. þm. sagðist alt af fylgja rjettum málstað, þá þykjumst við einnig geta sagt hið sama, og einnig um till. þessa með fullum rjetti.
Annars er það merkilegt, hve mikið er amast við þessari brtt. okkar, þar sem hún fer þó fram á að auka mest tekjur þeirra, sem lægst laun hafa, og bæta úr þörfinni, þar sem hún er mest. Ef til vill skerðir hún að einhverju litlu leyti tekjur hinna. En það kemur að eins niður á þeim, sem hæst laun hafa, og svo þeim, er ekki hafa fyrir börnum að sjá. Og hvernig í dauðanum er hægt að sanna það, að þeir menn sje alment eins illa settir? Hygg jeg því, að mótþróinn gegn brtt. þessari sje sprottinn af of skjótri athugun og misskilningi á málinu og engum öðrum ástæðum, því það er meining okkar flutningsmanna till, að uppbótin sje reiknuð á sama hátt og gjört er í brtt. fjárveitinganefndar, að prósenturnar breytist stig af stigi en ekki með stökkum.
Áður en jeg lýk máli mínu vil jeg því láta þá von mína í ljós, að háttv. deild samþykki þessa brtt. okkar, sem eingöngu er fram komin til þess, að draga úr misrjetti því, sem hlyti að verða, ef farið væri eftir tillögum nefndarinnar óbreyttum.