08.01.1917
Neðri deild: 17. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 470 í B-deild Alþingistíðinda. (544)
9. mál, landssjóðsverslunin
Framsm. (Matthías Ólafsson):
Eins og sjá má á þgskj. 54 hefir nefndin ályktað, að nokkrir menn úr henni skyldu koma fram með frv. í móti þessu, og þar eð frv. þetta er nú fram komið, hefi jeg og háttv. 1. þm. Reykv. (J. B.) ákveðið að taka till. okkar á þgskj. 9 og 18 aftur. Vildum við ekki halda fast við till., þar sem við gjörum okkur vonir um, og erum þess fullvissir, að stjórnin gjöri sjer alt far um, að menn út um land fái vörurnar með aðgengilegum kjörum. Annars vona jeg að hæstv. stjórn taki tillit til umræðanna hjer í deildinni, ef til þess kemur að hún verði að hafa einokun á einhverri vörutegund. Sjerstaklega vil jeg taka það fram, að þar sem öll líkindi eru til, að landsstjórnin hafi einkasölu á sykri, þá er ástæða sú, er hún færði fram gegn tillögu minni á þgskj. 9 horfin, að því er þá vörutegund snertir og hverja aðra, er hún kynni að hafa einkasölu á.
Forseti lýsti yfir því, að till. væri tekin aftur.