06.01.1917
Neðri deild: 16. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 515 í B-deild Alþingistíðinda. (582)
37. mál, lánveiting til raflýsingar á Ísafirði
Skúli Thoroddsen:
Mjer finst gæta nokkurs misskilnings hjá háttv. 2. þm. S.-M. (B. St.) í þessu máli. Hann sagði, að þeir þingmenn hans kjördæmis hefðu verið beðnir að flytja sams konar tillögu á þessu þingi, en ekki álitið það viðeigandi að koma fram með hana fyr en á reglulegu fjárlagaþingi. Jeg skal líka geta þess, að jeg hefi verið beðinn um að flytja tillögu um lánveiting úr landssjóði til rafveitu í Bolungarvíkurkaupstað nú á aukaþinginu, en sá mjer það ekki fært, eins og þetta þing er nú skipað, þar sem ekki má ræða, nema um eitt eða tvö nauðsynjamál, og allra síst minnast á fjárframlög úr landssjóði. En þessi mál, sem okkur háttv. 2. þm. S.-M. (B. St.) hefir verið falið að flytja, eru alls annars eðlis en till. sú, sem hjer er um að ræða. Við áttum að fara fram á lánveitingar til fyrirtækja, sem þingið hafði ekki sagt neitt álit um áður. En hjer er um fyrirtæki að ræða, sem þingið hefir talið nauðsynlegt og sýnt vilja til að styrkja. En jeg hygg, að hjer geti ekki verið um sams konar tillögu að ræða. Á síðasta þingi var sem sje veitt lán til þessa fyrirtækis, en það hefir enn ekki komist í framkvæmd, og nú er það sjeð, að kostnaður hlýtur að fara langt fram úr áætlun, sumpart vegna verðhækkunar á öllu efni, sem við þarf, og sumpart vegna þess, að stöðin á að verða talsvert sterkari en upphaflega var til ætlast, þar sem nú á að taka Hnífsdal með. Þá verða menn einnig að líta á það, að verkfræðingar hafa lýst yfir því, að komist verkið ekki í framkvæmd í sumar, eru allar líkur til þess, að það verði ekki unnið í næstu þrjú ár, — eftir stríðið verði þeir svo uppteknir af öðrum störfum, sem safnast hafi fyrir, að ekki verði hægt að sinna þessu verki. Þetta mál er hið mesta þjóðþrifamál og væri þinginu hinn mesti vansi að því, að fella það. Um fjárhag landssjóðs er mjer svo vel kunnugt, þar sem jeg er í fjárhagsnefnd, að jeg veit, að þar þarf ekkert að vera til fyrirstöðu. Auk þess er hjer ekki um annað að ræða en viðbót við áður ákveðna lánsheimild.
Till. háttv. 2. þm. S.-M. (B. St.) um að vísa þessu máli til fjárveitingarnefndar sýnist mjer vera hinn mesti hjegómi, og getur ekki komið fram í öðrum tilgangi en þeim, að stytta till. aldur, þar sem þingstörfum er hroðað svona viðstöðulaust af, og þegar mun ákveðið að slíta þingi á morgun. Auk þess er skoðun hans á málinu bygð á misskilningi, eins og jeg hefi þegar sýnt fram á. Vænti jeg því þess, að þar sem mál þetta hefir fengið eins góðar undirtektir í Ed. og nú er orðin raunin á, þá fari háttv. Nd. ekki að vera svo ósanngjörn að fella það.