29.12.1916
Neðri deild: 10. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 522 í B-deild Alþingistíðinda. (592)

17. mál, kaup á nauðsynjavörum

Magnús Pjetursson:

Jeg hefi ásamt háttv. 1. þm. Húnv. (Þór. J.) leyft mjer að flytja brtt. á þgskj. 32, sem virðist vera þyrnir í augum þeirra, sem enn hafa talað, þótt jeg fái reyndar ekki skilið röksemdaleiðslu þeirra.

Tilgangur þessarar þingsályktunartill. er, eins og háttv. flutnm. hennar (J. B.) hefir tekið fram, fyrst og fremst sá, að tryggja landið fyrir vöruskorti, en þeim tilgangi er alls ekki hnekt með brtt. okkar, en till. okkar er fram borin í því skyni að koma í veg fyrir, að landssjóður verði smásali. Þetta virðist einnig vaka fyrir háttv. þm. Dala. (B. J.), og er hann þó brtt. okkar andvígur. Einmitt þingsályktunartill. í því formi, sem hún er, gjörir landssjóð að smásala, því að ef tveir eða þrír menn gjöra fjelag með sjer í þeim tilgangi, að ná í vörur þessar, þá eiga þeir heimtingu á að fá landssjóðsvörurnar keyptar, ef ákvæði hinnar upphaflegu tillögu fá að standa óbreytt.

Það er einmitt þetta, sem mörgum hefir gramist, að einstakir menn hafa undanfarið stundum farið í kring um landsstjórnina, skotið á fjelögum, eða logið upp fjelögum, sem aldrei hafa til verið, til þess að geta komist að betri kaupum en allur almenningur. Yfirleitt mun þess óskað út um land, að menn geti fengið vörurnar gegn um sín gömlu viðskifti. Er það venjulega langþægilegast, og að minsta kosti nægilegt til tryggingar vöruskorti. Auðvitað eiga þessar ráðstafanir háttv. flutningsmanns till. (J. B.) að miða að því, að ljetta dýrtíðinni af þeim, sem bágast eiga. En fyrir því er einnig sjeð í brtt. okkar, með því að við látum orðið „sveitarfjelög“ standa, Þar er opinn vegur til þess, að fátæklingum sje hjálpað, með því að útvega þeim ódýrar vörur; því að varla mundu sveitarstjórnirnar taka neitt fyrir ómak sitt, eða leggja á vörurnar, og ekki þarf að vantreysta þeim í því efni, að vera fúsar til slíkra útvegana.

Ef till. á þgskj. 19 er óbreytt, og vörurnar strax seldar hverjum sem hafa vill, þá er óhjákvæmilegt að misrjetti mundi skapast, og bæjarmenn fá greiðari aðgang að ódýru vörunum heldur en hjeruð út um land, langt frá þeim stöðum, sem vörunum væri skipað í land. Og því furðar mig á því, að hv. þm. Dala. (B. J.), sem ætti að bera landsveitirnar fyrir brjósti, skuli vera andvígur brtt. okkar.

Ef landssjóður á að selja öllum fjelögum vörur eftir þessari till., hverju nafni sem þau nefnast, og hvernig sem þau eru mynduð, t. d. kvenfjelögum, söngfjelögum, kristilegum fjelögum, dansfjelögum, templarafjelögum o. fl., og ef það er meining háttv. flutningsmanns, þá er orðið um smásölu að ræða, og þá væri miklu heppilegra, að ganga bara hreint til verks og segja sem svo, að vörurnar skuli selja strax hverjum sem hafa vill. Þá kemur þeirra skoðun, eða afleiðingin af till. þeirra flutningsmanna ógrímuklædd í ljós. Í þá átt fer einmitt uppástunga háttv. þm. Dala. (B. J.), um að strika orðið „kaupmenn“ út. Það er meira samræmi í því, heldur en orðun till. frá háttv. flutnm. (J. B.).