12.01.1917
Neðri deild: 23. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í B-deild Alþingistíðinda. (60)
4. mál, Íslandsbanka leyft að auka seðlaupphæð
Jón Jónsson:
Jeg hefði getað látið mjer það nægja þótt tillaga mín yrði ekki samþ., ef jeg væri viss um að þessi banki væri trygg stofnun, en það veit jeg ekki. Við veitum honum alt af heimildir til að gefa út fleiri og fleiri seðla, en við vitum ekkert um það, hvort þetta fje er trygt eða ekki.
Jeg vil einungis minna háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) á það, að 1914 vildi hann ekki veita Íslandsbanka frekari heimild, nema reglugjörð bankans yrði breytt. Jeg var nú ekki svo stórtækur, að jeg vildi gjöra það að skilyrði, en hitt vildi jeg, að bankinn gyldi fult verð fyrir þau aukin rjettindi, sem hann fær.
Það sem fyrir mjer vakir, er það, að þetta Íslandsbanka mál verði sem fyrst tekið í heild sinni til rækilegrar rannsóknar. En hvað þessu atriði sjerstaklega viðvíkur, þá liggur það svo augljóst fyrir, að jeg þarf ekki nein skjöl frá stjórnarráðinu, til þess að átta mig á því.
Háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) taldi það líklegt, að bankinn tæki fremur danska seðla, heldur en að ganga að þessum kostum, sem jeg hefi farið fram á að honum verði settir. Jeg tel þetta ólíklegt. Jeg skil ekki annað en að bankinn hugsi sig um tvisvar, áður en hann tæki mikið af þeim, því að ef Danmörk skyldi lenda í stríðinu, þá er hætt við að seðlarnir yrðu valtir.
Það er rjett, að það er kostur að heimildin skuli vera bundin við vissan tíma, en líti menn á niðurlag greinarinnar, þá sjest, að stjórnin hefir þar nokkuð frjálsar hendur. Og jeg tel það alls ekki ósennilegt, að hún skjóti því á frest, að taka heimildina af bankanum.