12.01.1917
Neðri deild: 23. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 554 í B-deild Alþingistíðinda. (633)
35. mál, lán til garðræktar
Stefán Stefánsson:
Drætti þessa máls veldur það, að nefndin hefir ekki haft tíma til að átta sig á málinu til hlítar. Annars skal jeg lýsa því yfir, að mjer finst mál þetta ekki vera sjerstaklega mikilsvert og skaðlaust, þótt það sofni eða bíði næsta þings. Því að hjer mun ekki vera um aðrar lánveitingar að ræða en þær, sem hverjum manni væri innanhandar að fá heima í hjeraði, og styðst jeg þar sjerstaklega við álit flutningsmanns (B. J.), hvað kostnaðarspursmálið snertir.