11.01.1917
Neðri deild: 22. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 561 í B-deild Alþingistíðinda. (641)
Þinglenging
Bjarni Jónsson:
Sakir þess, að hæstv. forseti lýsti því yfir í dag, að þingi mundi slitið á laugardag næstkomanda, þá hefi jeg beðist þess, að fá að mæla orð nokkur.
Þykir mjer í óvænt efni komið, þar sem þingslit eru fyrir hendi, en mörg góð mál og þörf óafgreidd og mun engi kostur þess, að koma þeim öllum af á svo skömmum tíma, þótt með afbrigðum sje.
Af merkum málum, sem óafgreidd eru, gæti jeg nefnt nokkur, þótt óþarft sje, þar sem öllum er um þau kunnugt. Vil jeg þó drepa á nokkur þeirra.
Það er t. d. síldarmálið, sem telja má allmerkilegt. Er það hvorki útrætt enn nje í nefnd komið.
Þá er mikilsvert frv. frá mjer um heimild fyrir stjórnina til að selja vörur undirverði.
Sagði þó hæstv. forsætisráðherra (J. M.) á almennum fundi hjer í Reykjavík, þar sem við vorum báðir og vorum sammála, að hann hefði ekkert á móti því, að hafa nokkur þús. kr. undir höndum til þess, að geta selt fátæklingum vörur undir verði, og mundi því mál það þess vert að athugað væri.
Þá er till. um garðrækt, sem að flestra mætra manna dómi mætti að miklu gagni koma, ef fram fengi að ganga.
Þá er afnám á verðhækkunartolli, sem vitanlega er sjálfsagt mál og rjettlátt.
Þá eru samningamálin miklu, sem að vísu hafa verið sett í nefnd, en sú nefnd hefir víst ekki lokið störfum sínum enn þá. Að minsta kosti hefi jeg ekki enn þá sjeð nefndarálitið. (Pjetur Jónsson: Því var þó útbýtt í gær). Nú, einmitt það; það mun þá vera leyndarmál. Jeg fjekk að vísu lokað brjef hjer í gær, en utan á stóð „leyndarmál“. Hjelt jeg að það væri þingvísur, og hefi því ekki opnað brjefið enn þá.
Annars þegar á alt þetta er litið, þá sje jeg ekki, að brýn þörf sje á, að slíta þingi í þessu dauðast ofboði. Sje jeg ekki annað en þeir, sem óðfúsir eru heim, megi fara og halda megi þingstörfum áfram þrátt fyrir það.
Býst jeg ekki við, að þeir sje fleiri en svo, að fullur helmingur verði eftir í hvorri deild, og nægir það til þess, að mál geti fram gengið.
Vil jeg því leyfa mjer að fara þess á leit við hæstv. forseta, að hann beri það undir atkvæði í deildinni, hvort ekki skuli framlengja þingið.