11.12.1916
Sameinað þing: 1. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í B-deild Alþingistíðinda. (654)

Þingsetning

Ráðherra:

Mig langaði að eins til þess, að láta háttv. þm. vita, að jeg mun bráðlega biðja Hans Hátign konunginn lausnar frá embætti mínu. Jeg vildi láta þess getið nú þegar, til þess að háttv. þm. gætu hið bráðasta gert ráðstafanir til skipunar nýrrar stjórnar.