15.12.1916
Sameinað þing: 1. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 27 í B-deild Alþingistíðinda. (663)
Rannsókn kjörbréfa
Kristinn Daníelsson:
Það er af því að jeg á hjer hlut að máli um eina kæruna, að jeg bið mjer hljóðs, en eigi skal jeg þreyta hið háa Alþingi með löngu máli.
Jeg minnist ekki, að í þinginu hafi komið fram kæra, sem er bygð á minni rökum, en þessi kæra um kosninguna í Gullbr.- og Kjósarssýslu, enda hefir það tekið langan tíma, að finna kæruefnin, því að það var fyrir löngu orðið hljóðbært um aðrar kærur, sem hjer hafa komið fram, án þess að neitt kvis heyrðist um þessa fyr en nú síðustu dagana.
Í þessari kæru er aðdróttun, er snertir mig sjerstaklega. Það er viðvíkjandi sýnishorni af kjörseðlunum, er sent var út um kjördæmið, og jeg játa að hafa sent út. Jeg skoða það fyrir neðan virðingu mína, að fara að koma fram fyrir Alþingi með neinar afsakanir. En jeg vil að eins skýra frá, að þetta var gjört í líking við það, sem alvanalegt er í dagblöðum, og enginn hefir að fundið. Jeg lít nú svo á, sem það sje fremur hjegómi og mjög gagnslítið, að prenta í blöðum slík seðlasýnishorn, og jeg er svo skapi farinn, að mjer hefði ekki komið það til hugar, ef fáeinir kjósendur í kjördæminu hefðu ekki stungið upp á því og óskað þess, að slík sýnishorn, í líkingu við þau í dagblöðunum, væru prentuð og send út. Og jeg sje ekki annað en þessir seðlar sjeu öldungis eins. Jeg skal leyfa mjer að sýna háttv. þm. hjer eitt tölubl. Ísafoldar með nákvæmlega samskonar seðli. Hjer er borðinn jafnbreiður og jafnlangur, götin af sömu stærð, og seðilbreiddin sem næst því, sem er á kjörseðlum. En það er viðurkent af kærendunum, að seðlar þessir, sem hjer er um að ræða, hafi í verulegum atriðum verið öðruvísi, prentletrið á nöfnunum annað, annar pappír og seðlarnir mjórri, svo að óhugsandi var að nota þá við kosninguna, eða að villa kjörstjórnina á þeim.
Það mætti má ske segja, að seðlarnir í blöðunum, sjeu að því frábrugðnir, að það sje prentað á bakið á þeim, en í þessu Ísafoldarblaði, sem jeg hefi hjer með höndum, er ekkert prentað hinumegin á blaðið. Það er auðvitað að eins tilviljun, að jeg hefi blað í höndum, sem er þannig. Engum dettur í hug, að það hafi átt að nota til neinnar fölsunar.
Kærendurnir eru heldur ekki sammála um nothæfi seðlanna. Annar segir, að þeir hafi haft svo mikil áhrif, vegna þess, að kjósendunum hafi verið talin trú um, að kjörseðill þeirra væri ekki gildur, nema hann væri eins merktur og þar, en annar segir — og það þykir mjer leiðinlegt hans vegna, því að hann hlýtur að gjöra það móti betri vitund —, að líklega hafi margt af þessum seðlum verið notað til kosninga kosningadaginn. Þetta er vitanlega fráleitt. Þetta var það, sem jeg vildi taka fram, að jeg álít þessi sýnishorn í blöðunum og þessa seðla helst vera hjegóma, sem má ske hefði ekki átt að eiga sjer stað, og ætti ekki að koma fyrir oftar, en ef þeir varða við lagagreinina, sem vitnað er til, þá ætti samkv. henni að setja mig í fangelsi, en ekki ógilda kosninguna. En jeg verð að taka fram, að jeg get ekki með glöðu geði tekið á móti neinum vítum af Alþingi, sem hv. þm. Rang. (E. P.) talaði um, af því að jeg álít mig ekki eiga þau skilið.