12.01.1917
Neðri deild: 26. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 38 í B-deild Alþingistíðinda. (71)
4. mál, Íslandsbanka leyft að auka seðlaupphæð
Forsætisráðh. (Jón Magnússon):
Útaf fyrirspurn háttv. 1. þingm. Húnv. (Þ. J.), skal jeg geta þess, að báðir bankarnir hafa lánað stjórninni stórfje, og þó Íslandsbanki meira, og hefir hæstv. fyrv. ráðh. (E. A.) skýrt mjer frá því, að hann hafi tekið það fram við stjórn Íslandsbanka, að bankinn yrði að vera viðbúinn að lána landssjóði fje eftir þörfum, og hafi verið vel tekið undir það.