18.12.1916
Efri deild: 2. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 16 í B-deild Alþingistíðinda. (726)

4. mál, Íslandsbanka leyft að auka seðlaupphæð

Hannes Hafstein:

Jeg vil leyfa mjer, að leggja til að máli þessu verði vísað til allsherjarnefndar að þessari umræðu lokinni. Jeg lít svo á, að verksvið fjárhagsnefndar sje þau málefni, er snerta tekjur landssjóðs, tollmál, skattamál og það annað, sem að tekjum landssjóðs lýtur. En bankinn er að eins að litlu leyti ætlaður til þess að gefa landssjóði beinar tekjur, þó að hann gefi nokkrar, heldur er verksvið hans allsherjargagn, að efla framför atvinnuveganna og yfirleitt að útvega dugnaðarmönnunum magn þeirra hluta, sem gjöra skal. Jeg hygg því, að málefni Íslandsbanka falli miklu fremur undir verksvið allsherjarnefndar, sem vísi einmitt á að hafa slík allsherjarmál með höndum, sem ekki beint falla undir verksvið annara, sjerstakra lögboðinna nefnda. Því það hefir vafalaust ekki verið tilætlunin, að allsherjarnefndin væri að eins ruslakista.