06.01.1917
Efri deild: 13. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í B-deild Alþingistíðinda. (736)
4. mál, Íslandsbanka leyft að auka seðlaupphæð
Framsm. (Hannes Hafstein):
Það eru að eins örfá atriði í ræðu hv. 2. þm. G.K. (K. D.), sem valda því, að jeg stend upp. Hann taldi það eina ástæðuna móti því, að samþykkja þetta frv., að yfirstjórn bankans væri útlend, þar sem meiri partur hlutafjárins væri í útlendinga höndum. En þetta er út af fyrir sig alls engin ástæða til þess, að hefta viðskiftalífið hjer í landi og baka landinu tjón, síst þegar svo stendur á eins og nú. Ekki þótti það máli skifta, þegar Íslandsbanki var stofnaður, og einkarjettur til seðlaútgáfu honum veittur, þótt útlendir menn ættu alt hlutafjeð, og aldrei hefir það hamlað því, að landið hefði full not bankans til framfara atvinnuvegum. En ef það er alvara, að hlutafjeð, með því valdi, sem því fylgir, eigi að verða innlent, þá má síðar gjöra ráðstafanir til þess, að landið kaupi upp útlent hlutafje bankans, eða þá til þess, að aukið sje hlutafjeð, eins og áður hefir staðið til boða, þann veg að landssjóður eða hjer búsettir menn hafi forgangsrjettinn til þess að kaupa upp hina nýju hluti, svo að nægilegt atkvæðamagn á aðalfundum verði í höndum innlendra manna.
Nú er ekki tími á þessu stutta aukaþingi til málaleitana þeirra og ráðstafana, er nauðsynlegar mundu vera til þess, heldur verður að bíða betri tíma. Ef til vill verður unt að taka nýjar ákvarðanir um þetta efni á reglulega þinginu í sumar. En nú má ekki stofna viðskiftalífi landsins í háska með stirfni út af þessu.
Sami hv. þm. (K. D.) sagði, að þessi bráðabirgðalög væru til orðin alveg á móti vilja og tilætlun þingsins, sem ekki hefði viljað samþykkja meira en þessa aukning, um eina miljón kr., sem leyfð var með lögum 9. sept. 1915. Það er rjett, að samkvæmt þeim lögum var seðlaaukningin að eins ein miljón, sem háttv. Ed. þá áleit að mundi duga í bráðina. — En þingið sagði alls ekkert orð í þá átt, að ekki mætti auka seðlaútgáfuheimildina með öðrum lögum síðar. Enda hafði það ekki vald til þess. Jeg er sannfærður um, að þeim hv. þm., sem kunna að hafa látið í ljós, að þessi eina miljón ætti að nægja, hefir ekki komið til hugar sú fjarstæða, að þeir með því gætu bundið hendur landsstjórnarinnar, og svift konunginn því valdi, sem honum er trygt með stjórnarskránni, og bæði rjett og skylt að nota, þegar nauðsyn krefur, að gefa út bráðabirgðalög milli þinga. Bráðabirgðalögin mundu hafa gilt og átt fullan rjett á sjer þangað til næsta reglulegt þing gjörði aðra ráðstöfun, ef þetta óvænta aukaþing hefði ekki komið í spilið, af alt öðrum ástæðum, og knúð málið fram nú miklu fyr en varði, að öllum óviðbúnum. því síður væri forsvaranlegt, ef þingið synjaði nú þeirri bráðabirgðaráðstöfun, sem hjer er um að ræða.
Hv. 2. þm. G.-K. (K. D.) vildi játa, að aukning seðlaútgáfurjettarins hefði ef til vill verið nauðsynleg eins og á stóð, en það hafi þá verið bankastjórninni að kenna, sagði hann, að hún hafi ekki verið viðbúin, svo sem vera bæri, því annars hefði hún getað dregið inn fje, er bankinn ætti inni í útlendum bönkum. Mjer finst þetta nokkuð hörð og undarleg krafa gegn banka, að hann, sem ef til vill þarf til fjárgreiðslu að taka, þegar minst von um varir, til fyrirgreiðslu íslenskum viðskiftum erlendis, eigi að taka út rentufje sitt úr útlendum bönkum og liggja með það vaxtalaust hjer heima, til þess að hafa það til taks, ef ske kynni að hann þyrfti einhverntíma að nota það hjer heima. En auk þess er auðsætt, að það er ekki hægt að kalla inn í einni svipan fje t. d. frá Englandi, nema þá með stórkostlegu kúrs-tapi, og væri það hörð krafa, að bankinn selji innieign sína fyrir það lága gangverð, sem verið hefir og enn er á enskri mynt, til þess að geyma það, sem inn fæst, vaxtalaust hjer heima. Hitt, að bankinn hefði getað bætt úr þörfinni á gjaldmiðli innanlands með því að auka hlutafje sitt, sjá allir að ekki heldur nær neinni átt.
Jeg álít ekki þörf á að tala meira um þetta að sinni; held að ágreiningurinn um það, hvað gjöra verði nú sje ekki mjög svo mikill, að minsta kosti þá ekki nema af hálfu örfárra manna.