06.01.1917
Efri deild: 13. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 30 í B-deild Alþingistíðinda. (737)
4. mál, Íslandsbanka leyft að auka seðlaupphæð
Karl Einarsson:
Að eins stutt athugasemd. Hæstv. ráðherra (S. J.) sagði að það sem jeg hefði sagt um málið ætti að eins við framtíðina; átti sennilega við fortíðina; því jeg benti aðallega á hvað hefði gjörst í þessu máli á þingi 1914 og gjörði það til athugunar og leiðbeiningar fyrir stjórnina.
Jeg geng út frá því, að enginn hafi breytt frá þeirri skoðun, er hann hafði á máli þessu á þingi 1914, og ætlast til, að stjórnin taki þær skoðanir til athugunar, er hún býr málið undir næsta þing.