29.12.1916
Efri deild: 8. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í B-deild Alþingistíðinda. (780)

19. mál, æðsta umboðsstjórn landsins

Magnús Torfason:

Jeg þarf fáu að svara háttv. 1 landsk. þm. (H.H.), því hann virtist vera samþykkur ástæðum þeim, er jeg færði fyrir brtt., og kann jeg honum þakkir fyrir það, og get verið honum samdóma um það, eins og jeg í upphafi máls míns tók fram, að hjer sje ekki um neitt verulegt atriði að ræða, og það skifti litlu, hvort tillagan er samþykt eða eigi. En jeg verð fastlega að mótmæla því, að jeg hafi komið fram með þessa tillögu til þess, að tefja fyrir frumvarpinu, enda þykist jeg hafa sýnt, að svo er eigi, með atkvæði mínu, er ræða var um afbrigði frá þingsköpum. En hins vegar virtist mjer það — og svo mun hafa verið um þingheim allan — sem háttv. 1. landsk. (H. H.) ætti afarörðugt að átta sig á því vandaspursmáli.

Hæstv. ráðherra talaði um það, að eftirlitið með embættismönnum yrði styrkara með þremur ráðherrum, betra að dæma tillögur þær, er stjórninni berast. Þessu get jeg verið samþykkur. En hafi þetta eitt átt að liggja í átaldri rnálsgr. aths, er hún afar óviðkunnanlega orðuð. Mjer er og kunnugt um það, að þeir, sem ekki eru embættismenn hafa litið sömu augum á þessa málsgrein og jeg gjörði, og ekki verið í neinum vafa um hvert hún stefndi.

Það vakti fyrir mjer, er jeg kom fram með brtt. á þingskj. 36, að ekki megi setja aftur á fót landritaraembættið með einföldum lögum, og þar sem að heita má svo á, sem þetta sje nógsamlega tekið fram með ummælum hæstv. ráðherra (E. A.), og háttv. 1 landsk. þ:n. (H. H.), og öll deildin virtist samþykk þessum ummælum, get jeg, úr því engar aðrar brtt. eru komnar fram, tekið till. mína aftur, svo að málið þess vegna þurfi ekki að flækjast milli deilda.