29.12.1916
Efri deild: 9. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 64 í B-deild Alþingistíðinda. (786)
19. mál, æðsta umboðsstjórn landsins
Kristinn Daníelsson:
Fyrst það kom til umræðu, hvort hægt hefði verið að mynda stjórn með einum manni, þá kann jeg ekki við, að hv. 2. landsk. þm. (S. E.) standi einn uppi. Það er vitanlegt, og mjer kunnugt, að það er rjett, sem hann sagði, að það var hægt að mynda stjórn með einum manni, og hefði verið gjört, ef ekki hefði tekist að koma á samkomulagi millum flokkanna. Jeg vil einnig taka undir það, að þetta er að eins bráðabirgðafyrirkomulag, og getur engum komið til hugar, að slík samsteypustjórn sje framtíðarstjórn. Þetta er gjört hjer í líkingu við það, sem hefir þótt vel gefast annarsstaðar, sem tilraun til þess, að ráða sem best fram úr vandamálum þjóðarinnar nú á þessum hættulegu tímum.