10.01.1917
Efri deild: 16. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 74 í B-deild Alþingistíðinda. (810)
27. mál, strandferðaskip
Magnús Kristjánsson:
Jeg hefi nú fengið þá skýrslu frá hv. formanni samgöngunefndarinnar (S. E.), að eftir frumvarpinu sje heimilt að hafa ferðirnar fleiri en nefndarálitið gjörir ráð fyrir, en jafnframt því hefir hv. framsm. nefndarinnar (G. G.) skýrt frá því, að þeim mun fleiri sem ferðirnar væru, þeim mun meiri mundi tekjuhallinn verða af þeim.
Mjer finst vera ljóst, ef tekjuhallinn verður þeim mun meiri, sem ferðirnar eru fleiri, að stjórnin fari naumast upp á sína ábyrgð að hafa ferðirnar fleiri en lögin beint gjöra ráð fyrir.
Eins og nú lítur út fyrir, að skipaferðunum verði hagað, þá verða engar skipaferðir frá Norðurlandi til Suðurlands frá því í októbermánuði og þar til í júnímánuði.
Þetta er hreinasta óhæfa, og afartjón fyrir fjölda fólks.
Jeg fyrir mitt leyti verð að líta svo á, sem það sje bein skylda þingsins að ráða bót á þessu, því þetta er með öllu óhafandi.
Aftur er það um vetrarferðir þær, er jeg gat um, að þeirra er brýn þörf, en viðkomustaðir skipsins mættu vera miklu færri og áætluninni hagað á ýmsan annan hátt en fyrir sumarferðirnar.
Jeg er ekki vel ánægður með fyrirkomulagið á strandferðunum, fyr en þær eru komnar í það horf, að skip ganga til strandferða allan ársins hring, því fyr en svo er, tel jeg ekki, að þær komi að fullum notum.