12.01.1917
Efri deild: 18. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 102 í B-deild Alþingistíðinda. (860)

40. mál, kaup á eimskipum til vöruflutninga

Hannes Hafstein:

Bæði í þessu frv. og 2 öðrum frv., sem hafa verið hjer á dagskrá í dag og deildin hefir þegar samþykt, er gjört ráð fyrir allmiklum lám tökum landssjóði til handa.

Með þessu frv. er landsstjórninni heimilað að kaupa eitt eða fleiri millilandaskip og taka lán til þess. í frv. um ýmsar ráðstafanir út af Norðurálfuófriðnum er ætlast til þess, að landsstjórnin taki lán, til þess að kaupa allskonar varning, og enn fremur á landsstjórnin að taka lán til þess að kaupa eimskip til strandferða og kaupa á strandferðabátum.

En jafnframt því, er Nd. ætlast til þess, að landsstjórnin taki öll þessi lán er hún í öðrum lagasmiðum sínum samtímis að girða fyrir það, að peningalindirnar, innlendu bankarnir, sem að þessum lántökum verða að stuðla, geti komið að notum í þessu efni. Jeg á við breytinguna á frv. um aukinn seðlaútgáfurjett Íslandsbanka, sem jafnframt átti að koma Landsbankanum að liði.

Undarlegt tímanna tákn má það heita, að samtímis því, er hv. Nd. samþ. ráðstafanir, sem vafalaust gjöra nauðsynlegt að nota til þeirra að miklu leyti fje það, sem íslensku bankarnir eiga á vöxtum erlendis, ætlast hún til þess, að sömu peningarnir sje jafnframt notaðir til þess að kaupa fyrir þá útlenda peningaseðla, eða annan útlendan gjaldmiðil til sívaxandi innanlandsviðskifta.

Það er sem sje alveg víst, að þegar landið fer að kaupa þessi nýju skip, og vörur frá Vesturheimi, þá verður litið svo á, að verið sje að keppa á móti dönskum gufuskipafjelögum og danskri verslun, og eftir fenginni reynslu má fullyrða, að undir þeim kringumstæðum vilja dönsku bankarnir — og um aðrar peningalindir erlendis er ekki að tala, meðan stríðið stendur yfir — ekki leggja fram rekstursfjeð, án þess íslensku bankarnir taki að minsta kosti verulegan þátt í fjárframlögunum, eða mestmegnis beitist fyrir því, að leggja fram fjeð.

En ef bankarnir eiga að vera færir um slíkt, þá má ekki jafnframt taka fyrir kverkar þeirra, og gjöra þá gjaldmiðilslausa innanlands.

Jeg ætla mjer ekki að leggja orð í belg í umræðunum um það, hvort kaupa eigi eitt eða fleiri skip landssjóði til handa til aðflutninga. Jeg vildi geta stutt að því með atkvæði mínu, að keypt yrði að minsta kosti eitt skip, vegna hins sjerstaka ástands, sem stríðið skapar, þó að landssjóðsútgjörð sje ekki æskileg nje gróðavænleg fyrir landssjóðinn. En til kaupanna þarf fje, og það er þýðingarlaust að samþ. allskonar fjárgreiðslu úr landssjóði, nema því að eins, að landssjóði sje jafnframt sjeð fyrir möguleikum til þess að fá fjeð handbært.

Það er ekki til neins að gefa með annari hendi en taka jafnframt aftur með hinni það, sem gefið er. Það er lítil meinabót í því að samþykkja, að gjöra megi eða gjöra skuli hitt og þetta, ef jafnframt er girt fyrir, að mögulegt sje að koma því í framkvæmd.