12.01.1917
Efri deild: 19. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 108 í B-deild Alþingistíðinda. (869)
40. mál, kaup á eimskipum til vöruflutninga
Frsm. (Sigurður Eggerz):
Jeg fjekk tækifæri til að taka fram flestar ástæður fyrir frv. þessu við fyrstu umr. málsins, og sje því eigi ástæðu til að lengja umr. nú, bæði vegna þess, að tími þingsins er orðinn svo naumur, og jafnframt vegna þess, að jeg ber fult traust til hinnar heiðruðu deildar, að hún láti frv. ná fram að ganga.