12.01.1917
Efri deild: 19. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 116 í B-deild Alþingistíðinda. (879)

44. mál, útflutningsgjald af síld

Halldór Steinsson:

Háttv. meðnefndarmenn mínir hafa, síðan jeg bað mjer hljóðs, tekið fram flest af því, er jeg vildi sagt hafa, en úr því jeg stóð upp, þá vil jeg taka það fram, að jeg mun greiða atkvæði með frv.

Síldveiði hefir aukist stórum síðari árin hjer við land. Aðallega eru það Norðmenn, en þó einnig Íslendingar, sem hafa ausið miljónum króna úr sjónum, og er það mikill auður, sem að mestu hefir lent hjá útlendingum, því að þeir eiga hægari aðstöðu en vjer Íslendingar.

Jeg vil ekki segja að útlendingar hafi bolað Íslendingum frá veiðunum, en það er sýnilegt, að ef jöfn áframhaldandi sókn helst áfram frá þeim, þá getur svo farið, að þeir boli oss frá veiðunum.

Jeg lít svo á, sem frv. eins og þetta hafi tvennskonar tilgang, sem sje í fyrsta lagi að bægja útlendingum frá veiðinni, og í öðru lagi að efla tekjur landssjóðs.

Jeg lít svo á, sem allar auðsuppsprettur vorar, bæði til lands og sjávar, eigi að vera fyrst og fremst fyrir oss Íslendinga. Og útlendingar mega því að eins nota auðsuppsprettur vorar, að það komi ekki á nokkurn hátt í bág við okkar eigin framleiðslu, en síldveiði Norðmanna hefir að ýmsu leyti heft framleiðslu Íslendinga á þeim sviðum, og því þarf með lögum að koma í veg fyrir slíkan ágang útlendinga hjer við land.

En þetta frv. gjörir það ekki, því að eftir því geta Norðmenn veitt hjer eftir sem áður; að eins þurfa þeir að greiða nokkuð hærri toll en verið hefir, og það er engin hætta á, að þeir fyrir það hætti veiðum hjer við land. En þessi tollur verður drjúgur skerfur til landssjóðs, svo frá þeirri hlið er frv. þarft, og frá þeirri hlið er sjálfsagt að samþykkja það

Það hefir sjálfsagt vakað fyrir nefndinni, að styggja ekki Norðmenn fremur en aðrar þjóðir á þessum ófriðartímum, með því að hafa tollinn hærri, og það kann að vera rjett.

Jeg vil taka það fram, að jeg skoða þetta frv. að eins sem byrjun í þá átt, að hefta ágang útlendinga hjer við land, og að ekki er farið lengra, sje eingöngu gjört vegna hinna erfiðu tíma, er vjer nú eigum við að búa. En þegar stríðið er um garð gengið og jafnvægi kemst aftur á viðskiftalífið, tel jeg sjálfsagt, að við færum okkur upp á skaftið og tollum síldina hærra, svo að við getum náð þeim tilgangi, að bægja útlendingum frá þeirri veiði hjer við land, og Íslendingar fái í næði, einir að búa að sínu.