12.01.1917
Efri deild: 19. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 121 í B-deild Alþingistíðinda. (882)

44. mál, útflutningsgjald af síld

Magnús Kristjánsson:

Það er að eins örstutt athugasemd, er jeg vildi gjöra.

Hv. þm. Snæf. (H. St.) áleit að þessi leið væri eina örugga leiðin til að bægja burtu hjeðan veiðum erlendra manna, og jeg lít svo á, að þetta sje besta og eina færa leiðin, en þó ekki með þessari tollupphæð. Til þess að það náist, verður tollurinn að vera margfalt hærri, (Halldór Steinsson: Við erum sammála) eins og verðlag er nú á síld. En ef verðið lækkar stórum aftur, og verður eins og stundum var áður fyrir ófriðinn, þetta 15—20 kr. á síldartunnu, þá er þetta hár tollur, svo hár að hann nálgast það, að það sje ókleift að reka þennan atvinnuveg.

Það geta því allir sjeð, að það er nauðsynlegt, að bæði þau frv. um síld, er nefndin hefir mælt með, verði samferða. Og jeg vil ekki afgreiða þetta frv. frá deildinni, nema því að eins, að vissa sje fyrir því, að hitt frv. nái jafnframt fram að ganga.

Hv. þm. Ísf. (M. T.) virtist taka sjer nærri það, sem jeg sagði um innheimtulaunin, en jeg vil frábiðja mjer, að jeg hafi verið með nokkrar getsakir, hvorki í hans garð nje annara. En það er satt, að jeg hefi orðið var við óánægju yfir því, að innheimtulaunin eru hjer að eins l%, og hv. þm. Ísf. (M. T.) má vita það, að ekki eru allir jafn óágjarnir sem hann. Undantekningar eru til frá allri reglu.

Jeg vænti þess, að hv. þm. Ísf. (M. T.) sjái það, er hann athugar málið, að jeg móðgaði hann ekki með einu orði.