12.01.1917
Efri deild: 21. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 124 í B-deild Alþingistíðinda. (889)

44. mál, útflutningsgjald af síld

Kristinn Daníelsson:

Jeg skal ekki tefja lengi hinn stutta tíma er hið háa Alþingi á eftir, en jeg vil gjöra stutta grein fyrir atkvæði mínu, því jeg býst við, að það falli nú á nokkurn annan veg, en jeg ráðgjörði í öndverðu.

Hv. þm. Ak. (M. K.) gat þess, að það hefði og verið annað frv., frumvarpið um verðlaun fyrir útflutta síld til innlendra útvegsmanna, er hefði átt að fylgjast með þessu frv.. og að hann mundi ekki geta greitt þessu frv. atkv. nema hitt næði fram að ganga. Það var talið sjálfsagt í sjávarútvegsnefndinni, að þau hjeldust í hendur, og annaðhvort yrðu bæði samþ. eða bæði feld.

Jeg hefi sömu skoðun á þessu, en þegar jeg talaði hjer áður um þetta mál, þá láðist mjer að geta þessa.

En nú hefir hitt frv., tvíburafrumvarpið við þetta, verið felt með dagskrá í hv. Nd.,

og treysti jeg mjer þá ekki til að greiða þessu frv. atkvæði mitt, en mun greiða atkv. með þeirri rökstuddu dagskrá, sem hv þm. Ísf. (M. T.) bar fram.

Dagskrá sú, er líka í alla staði betri, en dagskrá sú, er hv. Nd. samþ. um verðlaunafrv., því að með þessari dagskrá er landsstjórninni beint falið að undirbúa málið undir næsta Alþingi.

Og þar sem Alþingi hefir nú rætt málið, þá mega þeir, sem hlut eiga að máli, vera búnir undir það, að málið verði afgreitt strax í byrjun næsta þings, og komi til framkvæmda fyrir veiðitímann að sumri.