12.01.1917
Efri deild: 21. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 127 í B-deild Alþingistíðinda. (893)
44. mál, útflutningsgjald af síld
Eggert Pálsson:
Jeg skal játa, að aðstaðan gagnvart þessu frv. hefir breytst við afdrif verðlaunafrv. í Nd. En samt finst mjer hjer vera um svo mikilvægt mál að tefla, að hv. deild sje ekki samandi að hafna þeim möguleikum, sem frv. veitir, til þess að fylla þau skörð, sem við höfum höggið í landssjóð með setu okkar hjer. Jeg er óánægður með, að hjer sje ausið fje úr landssjóði, en hafnað að fylla þessi skörð aftur. Jeg get ekki vikið frá þeirri skoðun, að það sje beinlínis skylda okkar að bæta landssjóði upp það fje, sem við höfum tekið úr honum. Öll alþýða manna lítur svo á, að hjer sje um ágætan tekjustofn að ræða. Eg jeg fæ ekki sjeð, að það geti valdið neinum skaða, þó að þetta frv. nái fram að ganga nú þegar. En ef við frestum að samþykkja slíkan toll, er hjer um ræðir — frestum því ef til vill þing eftir þing, getum við átt á hættu, að þessi tekjulind landssjóðs hverfi, og að hann missi þess hagnaðar, sem hún gat veitt og átti að veita honum. Á þetta hefir verið bent af skýrum og glöggum mönnum. Og þó svo sje nú komið, að verðlaunafrv. hafi verið vísað frá í Nd., þá á það ekki að verða þess valdandi, að vjer höfnum þessum tolli nú, því verðlaunafrv. er alt af innan handar að taka upp aftur og samþykkja á til næsta þingi. En þessu máli finst mjer miklu óhægra og óhyggilegra að fresta til næsta þings, því þó að jeg treysti vel stjórninni til þess að undirbúa málið, þá er þó norsku stjórninni opnaður vegur með frestuninni, til þess að reyna að hindra framgang þess á þingi í sumar. En sje það samþykt nú þegar, á hún miklu erfiðara um vik að koma í veg fyrir hækkun þessa rjettláta og nauðsynlega tolls.
Jeg er þess vegna eindregið móti því, að málinu sje frestað til næsta þings, og jeg mun greiða atkvæði móti dagskránni, sem komin er fram.