12.01.1917
Efri deild: 19. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 132 í B-deild Alþingistíðinda. (900)
22. mál, fasteignamat
Guðmundur Ólafsson:
Jeg skal ekki lengja umræður um þetta mál. Þetta er eitt þeirra mála, sem oss hefir verið búið í hendurnar af hv. Nd.; það er eitt þeirra lítilfjörlegu mála og heyrir ekki til nauðsynjamálunum.
Hv. 1. þm. Rang. (E P.), enda þótt hann væri hlyntur frv., virtist líta sömu augum og jeg á, að núverandi 9. gr. væri fullskiljanleg, og breytingin því ekki nauðsynleg. Þótt hún ef til vill sje ekki svo ljós, sem æskilegt væri, þá þarf ekki að vera í neinum vandræðum, því ekki þarf annað en líta í Þingtíðindin og taka af allan vafa, því þáverandi 1. kgk. þm. Eiríkur Briem tók skýrt fram tilgang greinarinnar.
Í fasteignamatslögunum stendur, að eyðijarðir, sem hafa verið sjermetnar, og eyðilönd skuli sjermetin, en nú á að breyta því, og ímynda jeg mjer, að þetta ákvæði sje engan veginn betra, og minsta kosti er það vafasamara.
Þá kem jeg að þriðju breytingunni, að kaup fasteignamatsmanna skuli hækkað um eina krónu. Jeg get að vísu fallist á, að kaup þeirra hafi verið of lágt, en sje ekki mesta þörf á að breyta því, og þingið ekki verið örlátara á síðustu árum, er það hefir ákveðið kaup alþýðu manna við opinber störf. Það er ekki langt síðan að lög um forðagæslu voru samþykt, og þar var forðagætslumönnum ætlað alt að 2 kr. í kaup, og þeir geta eins átt kaup skilið fyrir sitt starf, sem hvorki er þakklátt nje skemtilegt. Þá hafa sýslunefndarmenn 4 kr., og úttektarmenn 2 kr. á dag, og er það til muna lægra. Það er ekki af því, að jeg álíti eigi þetta kaup of lágt, heldur álít jeg óviðkunnanlegt, að sömu þingmenn, sem ákváðu þetta 2 kr. dagkaup fari nú hörðum orðum um, hve lágt kaup matsmanna er, og telji þessa hækkun brýna nauðsyn.
Hv. 1. þm. Rang. (E. P.) gat þess, að þetta frv. stafaði af því, að nokkrir matsmenn í Rangárvallasýslu hefðu ekki skilið lögin, eða 9. gr. þeirra, en jeg á bágt með að trúa því. Og þó svo hefði verið, þá gjörði það lítið til; þeir gátu metið samt eftir sem áður, því hún kemur ekki til framkvæmda fyrri en ákveðið er, hvaða skatt skuli leggja á jarðirnar.
Jeg viðurkenni, að sumar breytingarnar eru til bóta, en þykir óviðeigandi, að vera að smábreyta því, því fleiri breytingar geta komið fyrir næsta þing, og er óviðeigandi, að vera að breyta lögunum meðan matið stendur yfir — betra eftir matið.
Og vegna þess, að jeg lít svo á, að það sje betra að bíða, og allar breytingarnar lítilfjörlegar, og þó 9. gr. verði gleggri, þá álít jeg hún geti ekki valdið vafa, ætla jeg að leyfa mjer að koma fram með rökstudda dagskrá, er jeg skal, með leyfi hæstv. forseta, lesa upp. Hún hljóðar svo:
Í því trausti, að sá skilningur verði lagður í 9. gr. fasteignamatslaganna, sem felst í 2. gr. frumvarpsins, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.