12.01.1917
Efri deild: 19. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 134 í B-deild Alþingistíðinda. (901)

22. mál, fasteignamat

Sigurður Eggerz:

Jeg stend upp að eins til þess að mæla með því, að frv. verði samþ. Aðallega er það til þess, að skýra tvíræða stað í lögunum, og því til bóta. Kaupið má ekki minna vera en 6 krónur, því 5 kr. kaupið er til minkunar. Ef matsmaðurinn ferðast um að vetri til og gjörir reikning fyrir öllu, þá mundi hesturinn með fæði verða 3 kr., lágt reiknað, en næturgreiði 2 kr. Afgangur því ekkert kaup.

Hvaða vit er að bjóða helstu mönnum sveitanna svona kaup?