09.01.1917
Efri deild: 15. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 149 í B-deild Alþingistíðinda. (926)
18. mál, rannsókn á hafnarstöðum
Halldór Steinsson:
Jeg var ekki viðstaddur við fyrri umr. um þessa till. og því ekki kunnugt um hvað þar fór fram. En satt að segja bjóst jeg ekki við slíkri þingsál.till. á þessu þingi; því eins og kunnugt er, þá samþ. þingið 1915 áskorun til stjórnarinnar, um að láta fara fram rannsókn á hafnarstæðum og lendingum hjer við land. Mjer er ekki kunnugt um, hvað stjórnin hefir gjört í þessu, en heyrt hefi jeg, að hún hafi farið þess á leit við norskan hafnarverkfræðing að rannsaka hjer hafnstæði, þótt ekki hafi orðið úr framkvæmdum enn. Jeg lít nú svo á, að þetta eigi að bíða til næsta reglulegs Alþingis, eða þar til menn sannfærast um, að stjórnin hafi ekki gjört neitt í þessu efni. Jeg efast ekki um, að það sje þörf rannsókna á þessum sviðum, en hvort sú þörf er brýnni en annarsstaðar, það er mjer ekki kunnugt, og er alveg ósannað, bæði hvað viðkemur aðaltillögunni og breytingartillögunni. Það er enginn vafi á því, að það er mjög víða þörf á rannsókn, en hvar byrja skal og hvar enda, eða hvar þörfin er mest og hvar minst, það verður sjerfróður maður að segja til og stjórnin að fara eftir því.
Það var auðvitað að upphaflega till. mundi hafa dilka í eftirdragi, svo sem Vík, Kollafjörð og Hafnir, og að ekki er farið fram á rannsókn á fleiri stöðum stafar af því, að þingmenn vilja ekki tefja þetta aukaþing með óþarfa breytingartillögum.
Ef jeg hefði verið við fyrri umræðu þessarar tillögu, mundi jeg hafa komið fram með rökstudda dagskrá um að málið færi ekki lengra; að eins áminna stjórnina að gjöra það, sem henni ber í þessu. En nú eru menn búnir að binda sig með því að samþ. breytingartillöguna í gær, og mundi því rökstudd dagskrá í þá átt hafa lítinn byr nú.
Jeg vildi að eins taka þetta fram sem grein fyrir atkvæði mínu í þessu máli.