09.01.1917
Efri deild: 15. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 150 í B-deild Alþingistíðinda. (927)
18. mál, rannsókn á hafnarstöðum
Framsm. (Kristinn Daníelsson):
Jeg get að ýmsu leyti verið hv. þm. Snæf. (H. St.) samdóma, en hins vegar get jeg ekki felt mig við það, að þessi tillaga gangi ekki fram, þar sem málið er komið þetta langt, því að það gæti dregið úr framkvæmdum, gæti litið svo út sem áhuginn væri horfinn og þörfin ekki svo brýn, sem hún í raun og veru er. Og að jeg nú flyt þessa tillögu um höfn í Garði, stafar af því, sem jeg áður gat um, að einmitt nú hefir verið haldinn fundur þar syðra og skorað á mig að flytja þetta mál. Og jeg hygg, að allir háttv. deildarmenn sje mjer samdóma um það, að þetta geti engan veginn verið hindrun þess, að aðrir staðir verði rannsakaðir. Jeg hefi sjálfur fleiri staði að bera fram í mínu kjördæmi, t. d. Hafnaósa, og eru meiri líkur til, að þar takist fyrri að gjöra bátahöfn, og jeg vona að það verði brátt gjört, en í Garði er nauðsynin ef til vill enn brýnni, hvort sem unt verður nú nokkuð úr henni að bæta.
Jeg vona því að þingsályktunartillagan ásamt breytingartillögu minni nái fram að ganga, þar sem jeg get engan veginn sjeð, að hún skaði á neinn hátt.